Fegurð einfaldleikans í eftirréttum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 21. desember 2014 09:00 Á aðfangadag víkur Ragnar Freyr ekki frá því hefðbundna en á jóladag brettir hann upp ermar.
Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir og matargúruú, kveðst íhaldssamasti maður allra tíma á aðfangadagskvöld. „Þá er bara graflax og ristað brauð í forrétt, svínahamborgarhryggur í aðalrétt og perur Helenu fögru í eftirrétt. Allt eins og amma og afi höfðu það,“ segir hann. „Á jóladag reyni ég hins vegar að bretta upp ermar og hafa eitthvað nýstárlegra.“ Ragnar Freyr býr í Lundi í Svíþjóð og þangað fær hann foreldra sína og bróður til sín yfir jólin. Ragnar Freyr er nýbúinn að gefa út bókina Veislan endalausa og tekur því vel að deila tveimur uppskriftum að eftirréttum úr henni. Að sjálfsögðu hefur hann prófað þá. „Ég át allt sem er í bókinni og þessa tvo rétti hef ég gert nokkrum sinnum, þeir eru pottþéttir,“ lofar hann. Hlær dátt þegar hann er spurður hvernig hann líti út. „Ég er fimm kílóum of þungur. Maður sem borðar jafn mikið og ég getur ekki sloppið refsilaust en ég reyni að lyfta lóðum og spila skvass til að vega upp á móti átinu.“ Í annarri uppskriftinni eru súkkulaðibollar sem hann kveðst hafa leyft krökkunum að hjálpa til með. „Þetta er skemmtileg leið til að bera fram eftirrétt í og lyftir honum á hærra plan. Ég mæli líka með súkkulaði-pannacotta,“ segir hann. „Það er alveg fagurt hversu einfalt það er.“Súkkulaði-pannacotta Einfalt að gera, að sögn kokksins í eldhúsinu.Súkkulaði-pannacotta með hindberja-coulis og ferskum berjum Fyrir sex til átta Fyrir pannacotta 200 g súkkulaði 5 dl rjómi 3 dl nýmjólk 1 vanillustöng 150 g sykur 5 matarlímsblöðFyrir 350 ml af coulis 250 g frosin hindber 175 g sykur 200 ml vatn 1. Bræðið súkkulaðið í potti. 2. Hellið rjóma, mjólk og sykri saman við og blandið vel. 3. Skerið vanillustöngina niður eftir miðjunni og skafið fræin út með hníf. Setjið út í súkkulaðimjólkina ásamt sjálfri vanillustönginni og hitið að suðu. 4. Leggið matarlímsblöðin í kalt vatn og látið liggja þar þangað til suðan er komin upp í súkkulaðimjólkinni. 5. Færið þá pottinn af hitanum og látið kólna í nokkrar mínútur. 6. Takið gelatínblöðin upp úr vatninu og kreistið vatnið úr þeim áður en þeim er svo blandað saman við súkkulaðimjólkina. 7. Hellið súkkulaðimjólkinni í heppileg form. Hindberja-coulis 1. Setjið ber, sykur og vatn saman í pott og hleypið rétt upp suðunni. 2. Lækkið hitann og látið krauma létt þar til sósan hefur soðið niður um þriðjung. 3. Hellið sósunni í gegnum sigti og kælið. Bollar gerðir með blöðrum Nauðsynlegt er að dýfa blöðrunum tvívegis í súkkulaðið og láta það storkna á milli.Súkkulaðibollar með ís og heimalagaðri jarðarberjasósu Fyrir fjóra til sex nautnaseggi 200 g gott súkkulaði Vanilluís 4-6 blöðrur 250 g jarðarber 75 g sykur 1/4 bolli vatn 1. Bræðið súkkulaðið við lágan hita. 2. Blásið upp blöðrurnar í þá stærð sem þið kjósið. 3. Dýfið blöðrunum í súkkulaðið til hálfs og tyllið þeim síðan á bökunarplötu þannig að myndist flatur botn. Látið þær storkna og dýfið aftur í súkkulaðið til að gera bollann sterkari. Geymið í ísskáp í tvær til þrjár klukkustundir. 4. Hlutið jarðarberin í fjórðunga, setjið í pott ásamt vatni og sykri, hleypið upp suðunni og látið malla þangað til vatnið er soðið alveg niður. Leyfið sósunni að kólna eða berið hana fram volga. 5. Sprengið blöðrurnar og losið þær frá súkkulaðinu. 6. Setjið skálarnar á disk, nóg af ís í þær og svo eins mikið af jarðarberjasósu og hugurinn girnist! Leikkonan Þórunn er enn að velta fyrir sér eftirréttinum.vísir/ValliKaramella ómissandi Hver sem jóladesertinn verður hjá Þórunni Lárusdóttur leikkonu verður karamella í boði. „Ég er aldrei með það sama í jólamatinn – við hjónin erum bæði nokkuð tilraunaglöð og algerir gourmet-nautnaseggir! Það eru samt nokkrir fastir punktar í tilverunni á jólunum. Til dæmis eitt sem alltaf er í boði með eftirréttinum, bæði á aðfangadagskvöld og jóladag. Það er karamella sem ég geri og hún er svo góð að ég þarf að passa að hún klárist ekki fyrir matinn! Við höfum í gegnum tíðina haft karamelluna með heimalöguðum ís, ris à l´amande, súkkulaðiköku og fleiru."Karamella 2 1/2 dl rjómi 1 1/2 msk. sykur 3 msk. síróp Smjörklípa Vanilludropar Rjómi, sykur og síróp er soðið í hálftíma. Bæta svo smjörklípunni og vanillunni við.Tónlistarmaðurinn „Kannski höfum við bara bæði ris à l’amande og ís,” segir Þorbjörn.Tekur slaginn við tengdamömmu Þorbjörn Sigurðsson, verkfræðingur og tónlistarmaður, er vanur að fá gómsætan ís hjá tengdó á aðfangadagskvöld. Nú býður hann henni heim. „Ég hef farið til tengdó á aðfangadagskvöld seinni árin. Hún ber alltaf fram mjög góðan heimagerðan ís en ég er að gæla við að gera ris à l´amande fyrir þessi jól,“ segir Þorbjörn Sigurðsson verkfræðingur og gítar- og hljómborðsleikari með Mugison, Pétri Ben, Ensími og fjölmörgum fleirum. Hann kveðst eiga eftir að taka slaginn við tengdamömmu. „Tengdó kemur til okkar núna og er búin að bjóðast til að koma með ís.“Svo það er óvíst hvernig slagurinn endar? „Já, eða að þær mæðgurnar viti að það verði slagur. Ég á eftir að taka þá umræðu. En ég hef gert ris à l´amande áður svo ég treysti mér í það. Fann bara uppskrift á netinu og útkoman varð verulega djúsí. Kannski höfum við bara bæði ris à l´amande og ís, er ekki bæði betra?“
Mest lesið „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Lífið „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Lífið Liam Payne úr One Direction látinn Lífið Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Lífið Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ Lífið Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni Lífið Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Lífið Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Lífið „Að fá þykkt og fallegt hár hefur fyrst og fremst gefið mér aukið sjálfstraust“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Pískur sem þróaðist í hættulegustu samsæriskenningu síðari tíma Sjá meira