Undarleg þögn á jóladag Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 20. desember 2014 10:00 Julie, Michelle og Amelia borða allar hefðbundinn íslenskan jólamat en þó hver með sínu nefi. Julie notar til dæmis hangikjötið sem snakk með rauðvíninu. vísir/vilhelm
Michelle byrjar á því að segja okkur frá þeim jólasiðum sem hún ólst upp við á Filippseyjum en jólahaldið þar einkennist af mikilli samveru fjölskyldunnar og tíðum kirkjuferðum. „Jólin eru mjög lengi í undirbúningi. Í raun byrja jólin í september. Þá er byrjað að syngja jólasöngva og huga að hátíðarhöldunum,“ segir Michelle og bætir við að svo fari allt í fullan gang níu dögum fyrir jól. „Frá 16.-24. desember er vaknað klukkan fjögur á nóttunni og farið í messu. Ef maður klárar þessa níu daga samviskusamlega þá getur maður óskað sér og óskin rætist.“Gjafir eru aukaatriði Fjölskyldan kemur saman eftir messu og borðar morgunmat saman. Algengast er að hrísgrjón séu soðin í bambus og borðuð með eggjum og osti. Á aðfangadag er farið í messu seint að kvöldi og svo er jólamaturinn borðaður á miðnætti. Á veisluborðinu er að finna alls kyns góðgæti; grillað svínakjöt, nammi og ávexti. Michelle segir ekki alla gefa gjafir á Filippseyjum, eingöngu þá sem hafa ráð á því. „Gjafir eru ekkert aðalatriði heldur samveran. Á jóladag hittist öll fjölskyldan, börnin eru spariklædd og heimsækja alla ættingja, guðmæður og –feður. Stundum fá þau gjafir og þá helst pening. Það vekur upp spennu hjá þeim, að pening sé laumað í lófann þeirra af eldra fólkinu.“ Engir jólafrídagar Amelia er frá Búlgaríu en þegar hún var lítil var landið undir stjórn kommúnista sem hafði mikil áhrif á jólahaldið í landinu. „Kommúnistar voru ekki trúaðir og því voru jólin bara venjulegir dagar þegar ég var að alast upp. Allir krakkar fóru í skóla og fullorðnir í vinnu. Áramótin voru aftur á móti mun hátíðlegri en þá er hefð að börnin búi til vönd úr trjágreinum sem skreyttur er með helstu afurðum akuryrkju og ávaxtaræktar. Svo fara börnin með vöndinn og flengja fullorðna fólkið og syngja fyrir það lög og fá nammi eða pening,“ segir Amelia.Töfrastund á jólanótt Það hafa þó margir kristnar rætur í landinu og fjölskylda Ameliu hélt alltaf upp á jólin þrátt fyrir að frídagarnir væru fáir og hefðir fyrir jól voru í hávegum hafðar. „Í 45 daga fyrir jól er fastað. Þá er ekki borðað kjöt heldur eingöngu grænmetisréttir. Réttina á að borða klukkan sjö, níu eða tólf. Því vikan er sjö dagar, meðganga er níu mánuðir og árið er tólf mánuðir. Hefðbundnir réttir eru súrkál fyllt með steiktum hrísgrjónum, paprikur fylltar með baunum, þurrkaðir ávextir, valhnetur og nóg af rauðvíni með,“ segir Amelia og sleikir út um þegar hún rifjar upp matinn á aðventunni. „Svo er bakað brauð eingöngu úr hveiti og matarsóda. Peningur er settur í brauðdeigið og það er talið boða mikla lukku að fá peninginn í sinn hlut.“ Amelia segir gjafir ekki spila stórt hlutverk á jólunum. Töfrastundir barnanna felast í öðru. „Það ríkir hefð í Búlgaríu og sérstaklega úti á landi að ungir menn safnist saman og gangi um þorpið og syngi fyrir framan hús þorpsbúa. Sá söngur er talinn boða heilbrigði, hamingju og góða uppskeru. Aðalmálið er svo á miðnætti á aðfangadag en þá er því trúað að skýin opnist og þá eiga allar óskir að rætast.“Julie, Michelle og Amelia eru hrifnar af íslenskum jólaskreytingum og þá sérstaklega jólaljósum. Þær halda þó í sína siði og föndra jólaskreytingar frá heimalandinu. Hér eru þær með survachka, vöndinn sem börnin í Búlgaríu búa til og flengja fullorðna fólkið með, ásamt jólastjörnunni sem föndruð er á Filippseyjum og hver fjölskylda skreytir heimili sitt með.vísir/vilhelmAllir verða að fá ný jólaföt Julie er frá Nígeríu. Eins og í hinum löndunum er snemma byrjað að undirbúa jólin. „Þetta byrjar í september þegar fólk fer að kaupa jólaföt. Það er nefnilega mjög mikilvægt að börnin fái ný jólaföt þannig að foreldrar fara snemma að líta í kringum sig.“ Á jólunum snúa brottfluttir þorpsbúar heim og því er mikið um fagnaðarfundi. „Það er mikil stemning á aðfangadagskvöld. Þá eru allir úti að heilsa hver upp á annan, faðmast og spyrja frétta. Það er haldin glímukeppni og allir spila fótbolta. Svo lýkur kvöldinu á að allir fara í kirkju saman. Á aðfangadag koma allar fjölskyldur sér upp pálmatré við innganginn á húsum sínum, sem eru okkar jólatré. Pálmatréð táknar að allir séu velkomnir og að friður ríki á heimilinu.“ Jólamaturinn gengur um húsið Jóladagur er aðalhátíðisdagurinn. Þá er vaknað snemma og byrjað að matbúa. „Það fer eftir fjárhag fjölskyldunnar hvað er í matinn, hvort það er geit, hæna eða kýr. Nokkrum dögum fyrir jól er dýrið keypt og svo slátrað á jóladag. Það þýðir að margar fjölskyldur eru með lifandi kýr eða geit á heimilinu dagana fyrir jól.“ Farið er í kirkju um ellefuleytið og svo er jólamaturinn borðaður í hádeginu. Um kvöldið er aftur farið á stjá úti við og keppt í fótbolta sem allir í þorpinu fylgjast með. „Jólin snúast mikið um að hitta sem flesta og fagna saman. Það var því mikið áfall fyrir mig að koma til Íslands og þurfa bara að hanga inni allan jóladag enda allar búðir lokaðar og enginn á ferli. Mér finnst ríkja undarlega mikil þögn á jólunum á Íslandi,“ segir Julie en jólaskreytingarnar á Íslandi lýsa upp jólin hennar. „Jólaljósin eru æðisleg. Svo finnst okkur hangikjötið gott en við notum það meira sem snakk með rauðvíninu heldur en með kartöflum og uppstúf.“ Stórskrítin þessi Grýla Það sem Michelle fannst skrítnast við íslensku jólin eru aftur á móti þrettán jólasveinar. „Svo fékk ég algjört sjokk þegar ég heyrði söguna um Grýlu sem étur börnin. Ég fékk bara áfall. Þar að auki finnst mér maturinn sem borðaður er á Þorláksmessu stórundarlegur. Úldin skata og ammóníakleginn hákarl. Mér finnst samt íslenskt vodka sem maður fær til að skola þessum ósköpum niður alveg æðislegt. Þegar ég kom fyrst til Íslands fékk ég heimþrá á jólunum því mér fannst hátíðin vera svolítið einmanaleg og allir í sínu horni. Á Filippseyjum er töluvert meiri hávaði og allt opið á jóladag svo fjölskyldur geti gert eitthvað skemmtilegt saman. Hér á Íslandi er bara 10/11 opið og því höfum við opið hús hjá okkur og bjóðum öllum sem vilja í mat og drykk.“ Engin jól án skötu Amelia segist aftur á móti njóta þess að vera heima í rólegheitunum hér á Íslandi en hún hefur örlitlar áhyggjur af stressinu í jólaundirbúningnum. „Mér finnst stressið í Íslendingum bara versna ár frá ári, enda gefur fólk allt of mikið af gjöfum.“ Amelia á búlgarskan mann og hefur búið á Íslandi í 23 ár. Á þeim tíma hefur fjölskyldan tekið upp fjölmarga íslenska siði. „Það eru ekki jól án skötu á Þorláksmessu. Mér finnst skatan æðisleg. Svo borðum við hamborgarhrygg, hangikjöt, laufabrauð og allt þetta hefðbundna. Svo finnst mér íslensku jólasveinarnir alveg frábærir og þegar börnin voru yngri var ég alltaf jafn spennt að setja skóinn þeirra út í glugga.“
Mest lesið „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Lífið „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Lífið Liam Payne úr One Direction látinn Lífið Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Lífið Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ Lífið Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Lífið Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni Lífið Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Lífið Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Lífið Fleiri fréttir Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Pískur sem þróaðist í hættulegustu samsæriskenningu síðari tíma Sjá meira