Líflína íslenskra tónlistarmanna við það að slitna Gunnar Leó Pálsson skrifar 22. desember 2014 11:15 Aðeins ein plata sem var gefin út á þessu ári hefur farið í gull. Tónlistarmaðurinn Stefán Hilmarsson og þungarokkssveitin Skálmöld nálgast óðum gullsölu. Engin plata hefur selst í líkingu við plötur Mugisons, Ásgeirs Trausta og Of Monsters and Men. Eiður Arnarsson og Ísleifur B. Þórhallsson eru sammála því að plötusala á Íslandi sé á niðurleið.
Plötusala hér á landi hefur dregist talsvert mikið saman á milli ára, ef marka má sölutölur frá útgefendum. Á móti hefur stafræn neysla aukist umtalsvert og ber þá notkun Spotify hæst. Fréttablaðið heyrði í tveimur kanónum í plötuútgáfugeiranum, þeim Eiði Arnarssyni, sem er framkvæmdastjóri Félags hljómplötuframleiðenda, og Ísleifi B. Þórhallssyni, markaðsstjóra og framkvæmdastjóra tónlistar- og viðburðasviðs hjá Senu, til þess að fá frekari upplýsingar. „Plötusala hefur vissulega dregist saman en á sama tíma hefur ákveðin tilfærsla orðið á sölu tónlistar. Stafræn neysla hefur til að mynda aukist mjög mikið. Ef við berum saman tölur frá fyrri hluta ársins 2013 og fyrri hluta ársins 2014, kemur í ljós að stafræn neysla hefur aukist um 200 prósent á Íslandi. Þetta þýðir aukin hlustun á tónlistarveitum og á Íslandi er Spotify vinsælast,“ útskýrir Eiður.Eiður Arnarsson, framkvæmdastjóri Félags hljómplötuframleiðendaVísir/StefánÍsleifur tekur í sama streng. „Plötusalan er á niðurleið, það er alveg greinilegt að geisladiskurinn er að gefa eftir. Hins vegar er diskurinn það „format“ sem tónlistarmenn lifa á, diskasala er eins konar líflína bransans. Það getur ekki nokkur maður lifað af tekjum af stafrænum veitum. Það á alveg eftir að leysa viðskiptahlutann þar hvað varðar tekjur af tónlistarveitum. Draga má þá ályktun að eldra fólkið sé frekar að kaupa geisladiska, það sést þegar við rýnum í þá titla sem eru að seljast. Yngra fólkið er frekar á netinu og á tónlistarveitunum. Sú tónlist sem virkar líklega betur fyrir eldri hópanna er að seljast en við kvörtum ekkert yfir okkar hlut og stöðu í þessu málum. Við erum með flottan katalóg og salan er góð. Það eru samt áhyggjuefni í vændum,“ útskýrir Ísleifur. Tónlistinn sem gefinn er út vikulega af Félagi íslenskra hljómplötuframleiðanda er nokkuð áreiðanlegur til að sjá heildarplötusölu hér á landi. Í fyrra seldust um 100.000 geisladiskar og hljómplötur en þó nær sú tala eingöngu yfir plötur sem komast á topp-30 listann. Gera má því ráð fyrir að töluvert fleiri plötur en 100.000 eintök seljist árlega. „Við fylgjumst með plötusölu í gegnum Tónlistann og af honum má draga þá ályktun að plötusala sé um 85 prósent af því sem hún var í fyrra,“ bætir Eiður við.Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri tónlistar- og viðburðasviðs hjá Senu.Vísir/VilhelmPlötusala á tónleikum er þó ekki inni í Tónlistanum og plötusala hefur aukist mikið á tónleikum. „Það er í mörg horn að líta þegar draga á ályktanir hvað varðar plötusölur,“ segi Eiður. Það sem af er þessu ári er einungis ein plata komin í gull og er það safnplatan SG hljómplötur sem kom út í mars. Þó eru fleiri plötur að nálgast gullplötu eins og platan Með vættum frá Skálmöld og Í desember frá Stefáni Hilmarssyni. Þetta áhyggjuefni sem þeir Eiður og Ísleifur tala um er ekki eingöngu það að plötusalan er að minnka heldur að nýtt íslenskt efni á nýjum íslenskum plötum selst ekki nógu vel miðað við til dæmis safnplötur og þess háttar. „Það er áberandi ef maður lítur yfir Tónlistann, þá kemur fram að nýjar plötur með nýju innihaldi eru að seljast minna í ár heldur en í fyrra. Ef litið er á stöðuna á listanum, þá voru níu plötur á topp-tíu listanum í fyrra nýjar plötur með nýjum upptökum. Í sömu viku í ár eru aðeins þrjár plötur á sama topp-tíu lista nýjar plötur með nýju innihaldi. Hin sætin eru ferilsplötur, safnplötur, sem maður skýrir ekki sem ný hljóðrit,“ útskýrir Eiður.Safnplatan „SG hljómplötur“ sem kom út í mars er eina platan sem kom út á árinu sem hefur náð gullsölu, sem eru 5.000 eintök.„Eftir áramót mun það líklega blasa við okkur að það er erfitt að gefa út nýja tónlist, sérstaklega að gefa út nýja tónlist á íslensku, menn hafa áhyggjur af slíku. Helsta gulrótin fyrir tónlistarmenn er að meika það erlendis vegna þess að Íslandsmarkaðurinn er í uppnámi vegna þeirra aðstæðna sem upp eru að koma, með tilkomu tónlistarveita og þeirri staðreynd að tekjur af þeim eru ennþá langa vegu frá því ad standa undir kostnaði við gerð nýrra platna. Ég tel þetta líka ekki heppilegan tíma fyrir stjórnvöld að vera að auka virðisaukaskatt á tónlist. Ég hef áhyggjur af nýjum íslenskum plötum með nýrri íslenskri tónlist. Stórir söludagar eru hins vegar fram undan og margt getur gerst í plötusölunni,“ útskýrir Ísleifur. Árið 2011 og 2012 voru Mugison, Ásgeir Trausti og Of Monsters and Men með mikla yfirburði í plötusölu, sem voru þó nokkuð stór frávik miðað við gang mála framan af. Árið 2011 seldist platan Haglél með Mugison í 32.000 eintökum og árið 2012 seldist platan, Dýrð í dauðaþögn, með Ásgeiri Trausta í 23.000 eintökum og My Head Is An Animal með Of Monsters and Men í 11.000 eintökum. Spotify var kynnt til sögunnar í apríl 2013 og því er eðlilegt að álykta að plötusala hafi dregist saman vegna tilkomu hennar. Þó skal minna á að þarna dregst ein söluleið saman og önnur stækkar.Platan, Í desember sem Stefán Hilmarsson sendi frá sér fyrir skömmu hefur verið mjög vinsæl.Mest seldu plötur ársins 2014 Safnplatan „SG hljómplötur“ sem kom út í mars er eina platan sem kom út á árinu sem hefur náð gullsölu, sem eru 5.000 eintök. Stefán Hilmarsson Í desember 4.500 eintök. Skálmöld Með vættum 4.500 eintök. Gissur Páll Aría 4.000 eintök. Ragnar Bjarnason 80 ára 3.500 eintök. Ýmsir SG jólalögin 3.500 eintök. Ýmsir Pottþétt jól 3.500 eintök. Ýmsir Óskalög þjóðarinnar 3.200 eintök. Helgi Björnsson Eru ekki allir sexý 3.000 eintök. Ýmsir Fyrir börnin 3.000 eintök. Páll Rósinkranz 25 ár 3.000 eintök. Valdimar Batnar útsýnið 3.000 eintök. Jón Jónsson Heim 2.500 eintök. Dimma Vélráð 2.000 eintök. Amabadama Heyrðu mig nú 2.000 eintök. Ýmsir Indie Volume 2 2.000 eintök. Athugið að tölurnar eru yfir sölu á geisladiskum og hljómplötum. Tölurnar eru frá útgefanda og sýna mögulega ekki alla sölu, því sumir listamenn selja sínar plötur sjálfir á tónleikum. Um námundun er að ræða.Platan, Með vættum sem Skálmöld sendi frá sér á árinu stefnir í gull.Mynd/Lalli SigAthyglisverðir punktar Ef plötusala er skoðuð í gegnum Tónlistann má draga þá ályktun að plötusala í ár sé um 85% af því sem hún var í fyrra. Nýtt íslenskt efni á nýjum íslenskum plötum er ekki að seljast nógu vel miðað við til dæmis safnplötur og þess háttar. Draga má þá ályktun að eldra fólk sé frekar að kaupa geisladiska, það sést þegar við rýnum í plöturnar sem eru að seljast. Yngra fólkið er frekar á netinu og tónlistarveitunum. Stafræn neysla hefur aukist um 200% á Íslandi á milli ára.Platan, Haglél sem Mugison sendi frá sér árið 2011 seldist í 32.000 eintökum sama ár.Vísir/StefánSöluhæstu plöturnar undanfarin ár 2014 Safnplatan SG hljómplötur 5.000 eintök Stefán Hilmarsson, Í desember 4.500 eintök. Skálmöld, Með vættum 4.500 eintök. 2013 Baggalútur, Mamma þarf að djamma 6.000 eintök 2012 Ásgeir Trausti, Dýrð í dauðaþögn 23.000 eintök Of Monsters and Men, My Head Is An Animal 11.000 eintök 2011 Mugison, Haglél 32.000 eintök
Mest lesið „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Lífið „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Lífið Liam Payne úr One Direction látinn Lífið Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Lífið Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ Lífið Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni Lífið Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Lífið Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Lífið „Að fá þykkt og fallegt hár hefur fyrst og fremst gefið mér aukið sjálfstraust“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Pískur sem þróaðist í hættulegustu samsæriskenningu síðari tíma Sjá meira