Lífið

Hefur lítið fengist við skriftir áður

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur veitir Aldísi verðlaunin.
Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur veitir Aldísi verðlaunin.
„Ég er bara ennþá eiginlega að átta mig á þessu,“ segir Aldís Embla Björnsdóttir sem hlaut þann heiður í gær að sigra í samkeppni ungskálda á Akureyri fyrir smásögu sína Einræðisherra.

Önnur verðlaun hlaut Kristófer Alex Guðmundsson fyrir ljóðbálk sinn Brúthál og þriðju verðlaun hlaut Birna Pétursdóttir fyrir leikþáttinn Bóhemíudrottningin. Hlutu þau 50.000, 30.000 og 20.000 krónur í verðlaun. Þá fengu þau í hendurnar ritverkið Jónas Hallgrímsson – Ævimynd eftir Böðvar Guðmundsson að gjöf frá Menningarfélagi Hrauns í Öxnadal.

Einræðisherra fjallar að sögn Aldísar um frekt barn. „Einræðisherra er forvitnileg og vel stíluð smásaga – eða örsaga. Sjónarhornið er skemmtilegt og sögumaður óvenjulegur – enda ekki oft sem smábörn á fyrsta ári láta móðan mása. En merkilegt nokk er þessi ungi sögumaður trúverðugur. Það kannast margir við þetta eigingjarna, stjórnsama eða hreinlega freka barn sem þarna fær rödd. Hnyttinn endirinn varpar hins vegar nýju ljósi á krílið – og sýnir að hér er á ferð lunkinn höfundur.“

Aldís er nemandi á félagsvísindasviði við Menntaskólann á Akureyri en það kemur á óvart að hún hefur lítið fengist við skriftir áður. „Ég hef ekki fengist neitt við það, ég hef ekki gert annað en bara skólaverkefni,“ segir Aldís. „Þetta var í rauninni bara skyndiákvörðun.“

Aðspurð um hvort hún ætli að eyða verðlaununum í bækur, segir Aldís: „Ég veit það ekki, ég held að ég hafi alltaf verið mjög léleg að lesa bækur. Nei, nei, ætli þetta fari ekki bara inn á reikning.“

Að samkeppninni stóðu Amtsbókasafnið á Akureyri, Akureyrarstofa, Ungmenna-Húsið, Háskólinn á Akureyri, MA og VMA með stuðningi Menningarráðs Eyþings. Tilgangurinn með samkeppninni er að hvetja fólk á aldrinum 16-25 ára til skapandi skrifa og einnig að skapa vettvang fyrir það til að koma sér og skrifum sínum á framfæri. Þetta er í annað sinn sem þessi keppni fer fram. Það var Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur og dósent við Háskólann á Akureyri, sem afhenti verðlaunin fyrir hönd dómnefndar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×