Lífið

Breytti brúðarkjólnum í listaverk eftir að maðurinn aflýsti brúðkaupinu

Atli Ísleifsson skrifar
Shelby Swinks í brúðarkjólnum.
Shelby Swinks í brúðarkjólnum.
Bandaríska konan Shelby Swinks tók óvænta ákvörðun eftir að unnusti hennar aflýsti skyndilega brúðkaupi þeirra örfáum dögum fyrir athöfnina.

Swinks ákvað að birta myndband af sér í brúðarkjólnum - kjóll sem hefði geta orðið leiðinlegur minnisvarði um sambandsslitin - þar sem brúðarmeyjarnar og foreldrar hennar skvetta málningu á kjólinn svo úr verður litríkt listaverk.

„Um leið og málningin hæfði kjólinn varð ég frjáls. Allt svekkelsi og sársauki hvarf einfaldlega,“ skrifar Swinks á vefnum Offbeatbride.

Í myndbandinu er svo lagið „So What“ með Pink spilað en í laginu má meðal annars finna laglínuna „Guess I just lost my husband / I don't know where he went“.

Sjá má myndband Swinks að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×