Innlent

Gagnrýna samninga við fyrrverandi ráðherra og alþingismenn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Benedikt Jóhannesson
Benedikt Jóhannesson visir/vilhelm
Samningar sem íslenska ríkið gerði við fyrrverandi ráðherra og þingmenn um greiðslur fyrir verkefni eru gagnrýndir harðlega í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar. Í sumum tilfellum fengu einstaklingar greidda tugi milljóna fyrir verkefni sín.

Í skýrslunni er meðal annars vikið að samningum sem fjármála- og efnahagsráðuneytið gerði við Taur­us slf. sem er í eigu Tryggva Þórs Herbertssonar, fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins.

Ráðuneytið greiddi Taurus 14,5 milljónir króna árið 2014 en samtals 22,8 milljónir á tímabilinu 2013-15. Samkvæmt ráðuneytinu voru greiðslur vegna eins verkefnis 19,7 milljónir en fyrirtækið sinnti einnig tveimur öðrum og óskyldum verkefnum fyrir ráðuneytið á tímabilinu.

Árið 2015 gerði mennta- og menningarmálaráðuneyti samning við Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, um að móta stefnu ráðuneytis um eftirlit sitt, ábyrgð ráðherra í þeim efnum og að koma með tillögur um úrbætur. Áætlað var að verkefnið yrði unnið á haustmánuðum 2015, verksali fengi greiddar 5.000 krónur á klukkustund og að hámarki yrði greitt fyrir 480 klukkustundir. Lokaafurðin var skýrsla. Björgvin fékk greiddar 2,4 milljónir króna fyrir verkefnið. Ríkisendurskoðun segir óljóst hvernig ráðgjafinn var valinn og gagnrýnir ógagnsætt ferli við val á ráðgjafa.

Þá kannaði Ríkisendurskoðun einnig greiðslur til Sivjar Friðleifsdóttur, fyrrverandi ráðherra, sem gegndi formennsku Velferðarvaktarinnar. Hún fékk greiddar sex milljónir króna árið 2014 og sjö milljónir króna árið 2015 án þess að gerður væri samningur um þau þjónustukaup. Ríkisendurskoðun gagnrýnir það verklag sem er ekki í samræmi við lög um opinber innkaup eða góða starfshætti.

Í skýrslunni segir að á árunum 2013-15 hafi ráðuneytin greitt rúmlega 2,5 milljarða króna fyrir sérfræðiþjónustu. Einkum var um að ræða lögfræðiþjónustu, rekstrarráðgjöf og aðra sérfræðiþjónustu. Á þessu tímabili var opinberum aðilum skylt að bjóða út kaup á sérfræðiþjónustu, að undanskilinni lögfræðiþjónustu, þegar þau fóru umfram 12,4 milljónir króna. Á þessa útboðsskyldu hafi sjaldan reynt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×