Ákæra vegna manndráps verður þingfest í dag Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. apríl 2017 06:00 Grímur Grímsson fór fyrir rannsókn málsins. vísir/anton brink
Ákæran yfir Thomasi Møller Olsen, sem ákærður er fyrir að hafa banað Birnu Brjánsdóttur, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Honum var birt ákæran á fimmtudag. Í ákærunni er maðurinn sakaður um að hafa veist að Birnu með ofbeldi í Kia Rio-bifreið. Síðan hafi hann varpað henni í sjó eða vatn. Hinn maðurinn sem handtekinn var vegna gruns um aðild að málinu en síðar látinn laus eftir tæplega tveggja vikna gæsluvarðhald fékk fyrir helgi bréf þess efnis að málið gegn honum yrði látið niður falla. „Það er fellt niður á þeim grunni að það teljist ekki líklegt til sakfellingar,“ segir Unnsteinn Örn Elvarsson, verjandi hans. Hann segir skjólstæðing sinn óðum vera að jafna sig eftir málið og vera farinn á sjó aftur. „Hann fór fyrst í vinnu fyrir rúmri viku. En það var búið að fresta því að hann mætti í vinnu af því að hann var ekki í stakk búinn til þess. Hann er eflaust ekki hundrað prósent en þó betri.“ Unnsteinn segir skjólstæðing sinn hafa gefið skýrslu áður en hann yfirgaf landið en minnir á að hann hafi lýst sig viljugan til þess að koma og gefa skýrslu ef eftir því yrði kallað. „Það er ekkert sem stoppar það annað en að hann er í vinnu úti á sjó.“ Unnsteinn segist ekki hafa rætt við skjólstæðing sinn um hugsanlega málssókn á hendur íslenska ríkinu vegna handtökunnar og gæsluvarðhaldsins frá því að hann fór af landi brott.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Talinn hafa beitt Birnu ofbeldi í bifreiðinni og tekið hana kverkataki Grænlenski skipverjinn Thomas Møller Olsen hefur verið ákærður fyrir manndráp og stórfellt fíkniefnalagabrot. 9. apríl 2017 09:55 Mest lesið Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Innlent Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Erlent Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Innlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum Innlent Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Innlent Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Erlent Hjólhýsið fuðraði upp Innlent Fleiri fréttir Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum „Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins Hjólhýsið fuðraði upp „Ekki við hæfi“ að dómsmálaráðherra tjái sig um mál Helga Umdeild ummæli, líkur á gosi og truflandi skilti „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Vonar að ráðherra verði ekki við ósk Sigríðar Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Gæti gosið á næstu dögum Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Sjá meira
Talinn hafa beitt Birnu ofbeldi í bifreiðinni og tekið hana kverkataki Grænlenski skipverjinn Thomas Møller Olsen hefur verið ákærður fyrir manndráp og stórfellt fíkniefnalagabrot. 9. apríl 2017 09:55