Innlent

Menntun barna rædd á faglegum forsendum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Menntun fimm ára barna verður til umræðu á ráðstefnu á Grand Hóteli í allan dag.
Menntun fimm ára barna verður til umræðu á ráðstefnu á Grand Hóteli í allan dag. Vísir/Vilhelm
Undanfarin ár hefur við og við skotið upp kollinum umræða um að flytja fimm ára börn af leikskólastiginu og yfir í grunnskóla.

„Það hefur verið gert í sumum sveitarfélögum, við þekkum sveitarfélög eins og Garðabæ þar sem hluti barna fer í grunnskóla fimm ára. Það eru heilu sveitarfélögin eins og í Vestmannaeyjum þar sem fimm ára börn fara í deild við grunnskólann og svo framvegis. Akureyri er að byrja að tala um að flytja öll fimm ára börn yfir í grunnskóla,“ segir Kristín Karlsdóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ. Hún segir ástæðuna alla jafna vera þá að það þurfi að rýma til í leikskólunum til að koma yngstu leikskólabörnunum að. „Oftast er þetta því af praktískum ástæðum,“ segir hún.

Kristín segir þessa umræðu hafa áhrif inn í leikskólana sem velti því fyrir sér hvort þeir undirbúi börn nógu vel undir grunnskólann. „Það skiptir máli hvernig grunnskólarnir taka á móti fimm ára börnum, hvernig þeim er mætt.“

Umræða um menntun fimm ára barna er viðfangsefni ráðstefnu sem haldin verður á Grand Hóteli milli kl. 9.30 og 16.30 í dag. „Okkur fannst mikilvægt að reyna að ræða þetta í víðu samhengi og auðvitað fyrst og fremst með hliðsjón af því hvað þessi aldurshópur þarf. Hvers konar menntun við þurfum að bjóða þeim upp á,“ segir Kristín.

Ráðstefnan er haldin á tíu ára afmæli Rannung sem er rekið á vegum Menntavísindasviðs og hefur það að markmiði að auka og efla rannsóknir á menntun og uppeldi ungra barna á aldrinum 0 til 8 ára og vera vettvangur fræðaþróunar á því sviði.

„Það er á þessu sviði sem við höfum aðallega verið að rannsaka börn á leikskólaaldri og fyrstu árum grunnskólans,“ segir Kristín. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×