Innlent

Ráðherra ætlar ekki að stöðva lokun Háholts

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Meðferðarheimilið Háholt í Skagafirði var opnað árið 1999 og var rekið með þjónustusamningi.
Meðferðarheimilið Háholt í Skagafirði var opnað árið 1999 og var rekið með þjónustusamningi. vísir/gva
Þorsteinn Víglundsson félagsmálaráðherra ætlar ekki að grípa fram fyrir hendurnar á Barnaverndarstofu vegna meðferðarheimilisins Háholts. Héraðsfréttavefurinn Feykir greindi frá því að þjónustusamningur Barnaverndarstofu við rekstraraðila heimilisins hafi runnið út um mánaðamótin en starfsemin lagðist af í lok júní.

Vilji er fyrir því meðal sveitarfélagsins og fyrrverandi starfsmanna að halda rekstrinum áfram. Fyrrverandi forstöðumenn eru aftur á móti horfnir til annarra starfa.

Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður VG, hefur farið fram á fund í velferðarnefnd Alþingis vegna málefna Háholts og vill að á fundinn verði boðaður Þorsteinn Víglundsson félagsmálaráðherra, fulltrúi Barnaverndarstofu og starfsmenn Háholts.

Þorsteinn Víglundsson félagsmálaráðherra
„Það er Barnaverndarstofu að tryggja rekstur þeirra úrræða sem hún telur þörf á hverju sinni í tengslum við þennan mikilvæga málaflokk,“ segir Þorsteinn Víglundsson.

Ráðherrann segir að afstaða Barnaverndarstofu í málinu hafi verið skýr og ráðuneytinu verið gerð grein fyrir því að sú starfsemi sem rekin væri í Háholti nýttist Barnaverndarstofu ekki sem skyldi og réttlætti ekki árlegan rekstrarkostnað heimilisins. „Þetta væri liður í áralangri þróun þar sem aukin áhersla hefur verið lögð á það af hálfu barnaverndaryfirvalda að veita þjónustu nær heimilum viðkomandi einstaklinga,“ segir Þorsteinn. Stefnan sé að reyna að forðast vistunarúrræði í lengstu lög og í öðru lagi, ef vistunar er algjörlega þörf, séu þau nálægt heimili viðkomandi.

„Ég hef hitt fulltrúa sveitarfélagsins og hef sagt það alveg skýrt að málið væri hjá Barnaverndarstofu og rök Barnaverndarstofu fyrir lokun þess virðast vera skýr og greinargóð og ég hef ekki í hyggju að grípa inn í það ferli,“ segir Þorsteinn. Það sé ekki góð stjórnsýsla að ráðherra grípi inn í einstaka rekstrartengdar ákvarðanir Barnaverndarstofu eða annarra stofnana sem undir ráðuneytið heyra. Hins vegar muni hann ræða málið á fundi velferðarnefndar, verði þess óskað.

Árið 2014 samdi þáverandi velferðarráðherra, Eygló Harðardóttir, um áframhaldandi rekstur Háholts, þótt Barnaverndarstofa hefði þá þegar komist að þeirri niðurstöðu að úrræðið nýttist ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×