Innlent

Innflytjendur allt að fjórðungur nemenda

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Af 140 nemendum í grunnskólanum á Eskifirði eru 34 sem eiga annaðhvort annað eða bæði foreldri af erlendum uppruna.
Af 140 nemendum í grunnskólanum á Eskifirði eru 34 sem eiga annaðhvort annað eða bæði foreldri af erlendum uppruna. vísir/gva
Víða í sjávarplássum á landsbyggðinni er hlutfall nemenda af erlendum uppruna allt að fimmtungur eða jafnvel fjórðungur grunnskólanema. Hátt hlutfall erlendra nema hefur áhrif á niðurstöðu skóla utan höfuðborgarsvæðisins á samræmdum prófum. Þetta segir Gústaf Gústafsson, skólastjóri á Patreksfirði, í samtali við Fréttablaðið. Um 20 prósent nemenda í hans skóla eru af erlendum uppruna.

„Það eru að megninu til Pólverjar og svo Portúgalar. Við erum með einn frá Suður-Afríku og einn frá Taílandi, þannig að það er mikil flóra,“ segir Gústaf. Hann segir að það þurfi að horfa sérstaklega á þennan nemendahóp.

„Reyndar fáum við mikinn stuðning en það tekur tíma. Í sumum tilfellum koma þau nánast ótalandi á málið og þá tekur ákveðinn tíma að komast inn í málið og geta spreytt sig,“ segir hann.

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær standa nemendur á landsbyggðinni verr á samræmdum prófum en nemendur í höfuðborginni. Bilið þar á milli virðist vera að breikka.

Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar, sagði í Fréttablaðinu í gær að á landsbyggðinni væru skólar sem hugsanlega fengju ekki jafn góða þjónustu og stuðning og á höfuðborgarsvæðinu. Smærri sveitarfélög ættu erfiðara með að fjármagna slíkan stuðning. „Við sjáum líka að þar sem er hátt hlutfall af nemendum af erlendum uppruna þá bitnar það á einkunnum,“ bætti hann við

Gústaf segir Patreksskóla fá mikinn stuðning. „Okkur hefur ekki skort þann stuðning sem við höfum þurft á að halda. „Hins vegar eru kannski fimm til sex nemendur í hverjum árgangi í svona litlum sveitarfélögum. Og það þarf ekki nema að tveir séu undir meðalárangri, þá er meðaltalið dottið niður. Þeir birta reyndar ekki niðurstöður þar sem nemendur eru undir tíu en á fjórðungsmeðaltalinu kemur þetta fram.“

Í grunnskólanum á Eskifirði eru 34 nemendur af 140, eða um fjórðungur, sem eiga annaðhvort annað foreldrið eða bæði af erlendum uppruna. „Það breytir svolítið stöðunni, en þessir krakkar eru yfirleitt mjög duglegir,“ segir Hilmar Sigurjónsson skólastjóri. Hann segir enga eina skýringu vera á því að skólum utan höfuðborgarinnar gengur ekki betur. Það séu nokkrar samhangandi skýringar. Vissulega fái skólar utan höfuðborgarsvæðisins misjafnlega mikinn stuðning. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×