Lífið

Hætt saman - aftur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Khloe og French.
Khloe og French. vísir/getty
Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian og rapparinn French Montana eru hætt saman aftur samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

Us Weekly sagði fyrst frá því í september að parið hefði hætt saman eftir átta mánaða samband. Mánuði síðar voru þau byrjuð aftur saman. Nú er ástarloginn hins vegar varanlega slokknaður.

„Khloe var ekki tilbúin eftir Lamar og þetta var að verða of alvarlegt,“ segir heimildarmaður Us Weekly en Khloe skildi við Lamar Odom í desember í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×