Lífið

Ræður ekki yfir mynd um Cobain

Love hefur enga stjórn á því hvað birtist í heimildarmyndinni.
Love hefur enga stjórn á því hvað birtist í heimildarmyndinni.
Courtney Love hefur enga stjórn á því hvað birtist í væntanlegri heimildarmynd um rokkarann sáluga Kurt Cobain.

Ekkjan aðstoðaði við að koma myndinni af stað árið 2007 en síðan ekki söguna meir.

„Hún lét mig hafa lyklana að konungsríkinu og algjör yfirráð yfir myndinni,“ sagði leikstjórinn Brett Morgen við The Hollywood Reporter.

„Um tíma vann ég náið með Love og Frances Bean [dóttur Cobains og framleiðanda myndarinnar]. Við samþykktum að vegna þess að Courtney væri viðfangsefni myndarinnar væri það best að hún fengi ekki að ritskoða hana á nokkurn hátt. Hún hefur ekki séð myndina. Ég er ekki viss um að hún ætli að gera það.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×