Frábært tækifæri fyrir fagurkera 5. desember 2014 14:15 Mikil áhersla er lögð á grasrótina í íslenskri hönnun að sögn Þóreyjar Bjarkar Halldórsdóttur, fatahönnuðar og eins skipuleggjenda markaðarins. MYND/GVA
Árlegur „pop up“-jólamarkaður verður haldinn í porti Hafnarhússins í Listasafni Reykjavíkur um helgina auk helgarinnar 20.-21. desember. Um er að ræða farandverslun sem stofnuð var á sínum tíma sem vettvangur fyrir íslenska hönnuði til að selja og kynna vörur sínar. Mikil áhersla er lögð á grasrótina í íslenskri hönnun að sögn Þóreyjar Bjarkar Halldórsdóttur, fatahönnuðar og eins skipuleggjenda markaðarins, og að sýna það besta frá öllum sviðum hennar. „Þetta er sjötta árið sem við setjum upp slíkan markað og við búum okkur alltaf til nýtt heimili á nýjum stað með nýrri samsetningu hönnuða og vörumerkja. Markaðurinn er því aldrei með sama sniði og lagar sig að hverjum stað, hverju sinni.“ Um 30 hönnuðir kynna og selja verk sína á jólamarkaðinum og má þar finna fjölbreyttur vörur. Samsetning hönnuða verður önnur seinni helgina og því um að gera að kíkja í heimsókn báðar helgarnar að sögn Þóreyjar og velja eitthvað fallegt í jólapakkann eða inn á heimilið. „Þarna mun þverskurður af ferskustu íslensku grasrótarhönnuðum og vörumerkjum bjóða upp á nýjar vörur, jólaglaðning, afslætti og alls kyns tilboð milliliðalaust beint til neytenda. Þetta er því frábært tækifæri fyrir fagurkera á öllum aldri að kynna sér fallega íslenska hönnun og kaupa vörur á sérkjörum.“ Þórey segir mikla vinnu hafa farið í að byggja upp góða ímynd af markaðinum undanfarin ár sem hafi skilað sér í góðu orðspori og um leið stórum hópi tryggra viðskiptavina. „Þessir markaðir hafa verið mjög mikil auglýsing fyrir hönnuðina og hafa reynst mikill stökkpallur fyrir marga þeirra, sérstaklega smærri og nýrri vörumerki sem vilja kynna sig á þessum markaði.“ Það verður ekki bara boðið upp á fallega hönnun því Reykjavík Roasters kaffihús setur upp útibú á staðnum þar sem gestir geta tyllt sér niður í jólaösinni og notið veitinga. Einnig verður hægt að skoða allar jólavættirnar á Listasafni Reykjavíkur og ljúfir tónar munu hljóma um salinn á meðan markaðurinn stendur yfir. Jólamarkaðurinn verður opinn frá kl. 11 til 17 á morgun, laugardag, og sunnudag og einnig helgina 20.-21. desember. Nánari upplýsingar má finna á Facebook undir PopUp.verzlun.
Mest lesið One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Lífið Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Lífið Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Lífið Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Lífið „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Lífið „Ekki þurrt auga í salnum“ Lífið Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni Lífið Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Lífið Liam Payne úr One Direction látinn Lífið Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Lífið Fleiri fréttir One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Sjá meira