Lífið

Fylgist spennt með söfnuninni

Miklum meirihluta þeirra verkefna sem klárast hjá Karolina Fund er stjórnað af konum.
Miklum meirihluta þeirra verkefna sem klárast hjá Karolina Fund er stjórnað af konum.
Melkorka Ólafsdóttir, flautuleikari og verkefnastjóri tónlistar í Hörpu, leggur um þessar mundir lokahönd á útgáfu geisladisks með einleiksfantasíum Georgs Philipps Telemann. Hún hóf söfnun fyrir útgáfu disksins í gegnum hópfjármögnunarsíðuna Karolina Fund fyrir nokkru og lýkur henni á morgun.

Melkorku vantar örfá prósentustig upp á að heildartakmarkinu verði náð. Samkvæmt reglum Karolina Fund þarf að safna allri upphæðinni sem lagt er upp með innan tiltekins tíma. Annars er ekkert dregið af þeim sem leggja söfnuninni lið og sá sem safnar fær ekkert í sinn hlut. „Það er hluti af spennunni og hvetur fólk til að taka þátt,“ segir Melkorka.

Tilbúin til dreifingar

Platan var tekin upp í Langholtskirkju í vor og er tilbúin til dreifingar. „Þetta eru verk sem ég er búin að vera að vinna að lengi. Ég lagði upp í ferðalag árið 2008 og spilaði fantasíurnar í helstu kirkjum landsins. Það var um það leyti sem verið var að byggja Hörpu. Hugmyndin snerist um að spila í kirkjum sem hafa þjónað sem tónlistarhús landsmanna í gegnum aldirnar, áður en við fengjum okkar aðaltónlistarhús. Tónleikarnir fengu mjög góðar viðtökur og verkin hafa fylgt mér síðan. Þegar ég ákvað að snúa mér að verkefnastjórn í Hörpu vildi ég gera upp við þessi verk. Þetta er kannski eins konar kveðjusöngur fyrir ákveðið tímabil en framtíðin er auðvitað óráðin,“ segir Melkorka.

Á vel við um jólin

Þó svo Telemann hafi verið uppi á 18. öld segir Melkorka tónlistina eiga vel við í dag. „Sumir halda að tónlist frá þessum tíma sé mjög formföst og einhliða en því fer fjarri hjá Telemann eins og nafnið Fantasíur gefur til kynna. Þær eru tólf talsins og eins fjölbreyttar og hægt er að hugsa sér. Sumir kaflarnir eru mjög innilegir. Aðrir minna á götudansa. Músíkin er tímalaus og snertir marga fleti. Mér finnst hún alveg sér á parti. Hún á líka sérlega vel við um jólin.“ segir Melkorka sem undirbýr útgáfuhóf í Mengi þriðjudaginn 16. desember kl. 17. Þar mun hún taka vel á móti áhugasömum, bjóða upp á tóndæmi og annað óvænt.

Utan þess að leggja lokahönd á plötuútgáfuna eyðir Melkorka helginni í undirbúning fyrir komu London Philharmonic Orchestra sem leikur í fyrsta sinn í Hörpu 18. og 19. desember næstkomandi. „Hún er ein besta hljómsveit Bretlands og þó víðar væri leitað,“ segir Melkorka. Þar hefur verið leitað að flautuleikara um nokkurt skeið og var Melkorka ein fárra flautuleikara í heiminum sem léku með hljómsveitinni til reynslu fyrr á árinu. Enn hefur enginn fyrsti flautuleikari verið fastráðinn.

Vongóð um að takmarkið náist

„Annars mun ég auðvitað fylgjast spennt með söfnuninni,“ segir Melkorka, sem er vongóð um að takmarkið náist. En af hverju valdir þú hópfjármögnun með Karolina Fund? „Hún er ein af fáum raunhæfum leiðum til að fjármagna plötuútgáfu, enda orðið mjög erfitt að fá styrki, þeir fáir og litlir. Þetta er líka sniðugt fyrirkomulag því fólk er í raun að kaupa afurðina fyrirfram og jafnframt að leggja sitt af mörkum til að láta verkefni verða að veruleika.“

Konur betri í hópfjármögnun

Karolina Fund var stofnað af þeim Inga Rafni Sigurðssyni, Jónmundi Gíslasyni og Arnari Sigurðssyni fyrir tveimur árum og hefur orðið mikil sprenging hjá þeim að undanförnu. Síðan er þegar orðin mikilvægur stólpi í styrkjaumhverfi landsins. Nú hafa 90 verkefni verið fjármögnuð með hjálp yfir níu þúsund einstaklinga en þeir hafa heitið hátt í hálfri milljón evra, eða 70 milljónum króna, til þessara verkefna.

„Skilyrði sjóðsins er að verkefnin sem safnað er fyrir séu skapandi og skili einhverri lokaafurð,“ segir framkvæmdastjórinn Ingi Rafn. Hann bendir á að verkefnum sem fara af stað í fjáröflun sé til jafns stjórnað af körlum og konum. „Á milli 80 og 90 prósent verkefna sem klárast er hins vegar stjórnað af konum. Þær virðast því betri í hópfjármögnun. Ástæðu þess væri að mínu mati áhugavert að rannsaka frekar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×