Lífið

Breytir íbúð unnustans

Trúlofuð Aniston og Theroux trúlofuðu sig í ágúst árið 2012.
Trúlofuð Aniston og Theroux trúlofuðu sig í ágúst árið 2012.
Jennifer Aniston vill endurinnrétta piparsveinaíbúð unnusta síns, Justins Theroux, í New York vegna þess að það er alltof langt síðan hún gerði eitthvað slíkt.

Aniston og Theroux hafa verið trúlofuð síðan í ágúst 2012. Þau eiga hús í Bel Air í Kaliforníu og búið er að taka það í gegn. Piparsveinaíbúðin er næst á dagskrá. „Ég elska þetta,“ sagði hún um innanhússhönnun.

„Þetta er fínt áhugamál, þannig séð. Ég á erfitt með að sitja kyrr og því er gaman að gera eitthvað svona. Ég hef ekkert gert síðan júní,“ bætti hún við í léttum dúr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×