Það á enginn annar svona hús Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. desember 2014 14:00 „Við teljum að Kápa hafi verið tröllskessa sem hafi orðið að steini þegar sólin kom upp einn morguninn,“ segir Halldóra Dröfn. Fréttablaðið/GVA
Það er verst hvað dimmviðrið er mikið í dag. Við erum með Búlandstind í bakgarðinum en nú grillir ekki í hann,“ segir Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir brosandi þegar bankað er upp á hjá henni í Kápugili við Berufjörð. Hún býr með fjölskyldu sinni í stjörnulaga húsi inn á milli kletta og erindið er að fá að kíkja inn og komast í nánd við einstaka orkustrauma sem um húsið liggja.Kápugil Upphaflega var húsið teiknað eins og píramídi en var svo breytt í stjörnu.Ræður öllu Halldóra er hvorki meira né minna en leikskóla-, grunnskóla og tónskólastjóri á Djúpavogi. „Ég ræð öllu, segi ég stundum við krakkana,“ segir hún hlæjandi. En það er ekki um starfið hennar heldur húsið sem við erum sérstaklega forvitin. „Já, þetta er skrítið hús og það er ofboðslega góður andi í því. Öllum sem koma hingað finnst koma friður og ró yfir þá,“ segir Halldóra. „Sá sem byggði húsið heitir Emil Björnsson, hann er ættaður frá Teigarhorni og er mikill útivistarmaður. Hann teiknaði húsið fyrst sem píramída, ætlaði að hafa það í laginu eins og Búlandstind. En svo sá hann að efri hæðin yrði alltof þröng og togaði hornin út. Þegar horft er á húsið ofan frá er það eins og stjarna og öll herbergin í því eru stór og björt. Eitt er víst, það á enginn annar svona hús.“Halldóra hefur það eftir húsbyggjandanum, fyrrnefndum Emil, að þrjár orkulínur mætist í súlu sem gengur upp í gegnum húsið. Þær komi frá nálægum stöðum sem kraftur streymi frá, meðal annars Búlandstindi. „Hér er mikill orkupunktur,“ segir hún og styður hendi á súlu á neðri hæðinni sem hún segir enn greinilegri á þeirri efri – og það passar.Ætluðu að vera eitt sumar Halldóra Dröfn og eiginmaður hennar, Albert Jensson, eru Stöðfirðingar sem komu á Djúpavog 1995. „Við ætluðum að vera hér eitt sumar. Albert fór að þjálfa fótbolta en ég var nýútskrifaður kennari og ætlaði að fara heim á Stöðvarfjörð að kenna um haustið. Svo voru allar kennarastöður dekkaðar þar en hér vantaði kennara svo ég hugsaði, ah, jæja, ég verð þá einn vetur hér. En svo ílengdumst við. Bjuggum fyrst þrjú ár úti í þorpi en langaði alltaf að eiga hús aðeins utan við bæinn, svo frétti ég einn daginn á kennarastofunni að Kápugil væri til sölu. Við fengum að kíkja á það sama dag og ekki varð aftur snúið. Við fluttum hér inn 4. maí 1998 og erum mjög hamingjusöm, enda í dásemdarumhverfi.“Fyrir ofan tvennar dyr uppi eru málverk af degi og nótt. Hér brosir sólin sjálf.Margir reka upp stór eyru Eftir skoðunarferð um þetta skrítna hús kíkjum við á garðinn. Tilkomumikill klettur setur svip sinn á hann, þar búa hollvættir heimilisins, að sögn Halldóru. Hreindýrin hafa eyðilagt sum trén enda virða þau engar hindranir eins og girðingar. Rjúpa kurrar í grenndinni og uppi í hlíðinni blasir við gil, Kápugil. „Margir reka upp stór eyru þegar þeir heyra bæjarnafnið Kápugil,“ segir Halldóra. „Venjulega sagan er mjög einföld, að það hafi verið kind sem hét Kápa sem hafi haldið til í gilinu. En sagan sem við höldum á lofti er að Kápa hafi verið tröllskessa. Það er drangur hér rétt fyrir ofan og þar segjum við að hún hafi orðið að steini, þessi elska. Ekki varað sig einn morguninn þegar sólin kom upp.“
Mest lesið „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Lífið „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Lífið Liam Payne úr One Direction látinn Lífið Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Lífið One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Lífið Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Lífið Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ Lífið Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni Lífið Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Lífið Fleiri fréttir One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Sjá meira