Greiðsluáskorun Skatturinn 16. maí 2024 03:00 Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. maí 2024, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 6. maí 2024 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. maí 2024, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi, kílómetragjaldi vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er 13 þúsund kr. fyrir hvert fjárnám. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. maí 2024. Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á VestfjörðumSýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Mest lesið Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Viðskipti innlent Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Viðskipti innlent Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Ótrúlegar viðtökur á stuttum tíma Greiðsluáskorun Sinna verktöku hjá Wolt samhliða námi og öðrum störfum Smáhýsin frá BYKO eru vinsæll valkostur fyrir hvaða tilefni sem er Langar meira í 911 T-Hybrid en bæði lungun sín Fjölbreyttar lausnir fyrir íslenskan markað Lánskjaravakt Aurbjargar auðveldar leit að hagstæðara húsnæðisláni Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Nútímaleg nálgun í netöryggi Íslensk framleiðsla og traust lausn fyrir byggingarmarkaðinn Með hollustu að leiðarljósi Sjá meira
Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á VestfjörðumSýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Mest lesið Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Viðskipti innlent Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Viðskipti innlent Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Ótrúlegar viðtökur á stuttum tíma Greiðsluáskorun Sinna verktöku hjá Wolt samhliða námi og öðrum störfum Smáhýsin frá BYKO eru vinsæll valkostur fyrir hvaða tilefni sem er Langar meira í 911 T-Hybrid en bæði lungun sín Fjölbreyttar lausnir fyrir íslenskan markað Lánskjaravakt Aurbjargar auðveldar leit að hagstæðara húsnæðisláni Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Nútímaleg nálgun í netöryggi Íslensk framleiðsla og traust lausn fyrir byggingarmarkaðinn Með hollustu að leiðarljósi Sjá meira