Hafði ekki hugmynd hver Palli væri á balli í Gamla bíói Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 16. ágúst 2024 07:00 Páll Óskar og Edgar Antonio Lucena Angarita stálu senunni á brúðartertunni! Viktor Freyr/Vísir „Hann vissi ekkert hver ég var þegar hann kynnist mér. En eftir tvo daga, ég held að það hafi verið á miðvikudegi, sagði ég við hann: „Ég verð að segja þér við hvað ég vinn,“ segir tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson sem dró eiginmann sinn, Edgar Antonio Lucena Angarita, með sér á skólaball í Gamla bíói.
Páll Óskar og Antonio voru uppi á stærðarinnar brúðartertu í Gleðigöngunni síðastliðinn laugardag. Páll Óskar söng öll sín frægustu lög á meðan Antonio stóð við hlið hans. Ástin var í algleymingi og er óhætt að segja að tár hafi verið á hvarmi víða. Páll Óskar segir í samtali við Vísi að þetta hafi verið meiriháttar upplifun bæði líkamlega og andlega fyrir Antonio. Upplifðu gönguna upp á nýtt „Hann er enn þá að ná sér, við erum í raunni að upplifa tvenns konar hluti. Það er eitt að vera uppi á þessum trukki og að fara í gegnum mannmergðina og að upplifa gönguna í rauntíma en svo er maður aftur að upplifa gönguna upp á nýtt þegar maður horfir á vídeó og ljósmyndir,“ segir Páll Óskar. „Þá fyrst gerir maður sér grein fyrir því að þetta hafði áhrif á annað fólk og það hreyfir við okkur tilfinningalega. Við höfum alveg leyft okkur að gráta yfir þessum myndböndum og myndum sem við höfum fengið send og séð í fjölmiðlum.“ Augnablikið þegar Páll vissi að þetta væri sinn maður Ástarsaga þeirra Páls Óskars og Antonios hefur eðli málsins samkvæmt vakið landsathygli. Páll Óskar enda verið einhleypur um árabil en sungið um ástina nánast eins lengi og elstu menn muna. Þegar þeir hittust fyrst hafði Antonio ekki hugmynd um hvílík þjóðargersemi Páll Óskar væri í raun. Hann segir að í sömu viku og þeir kynntust hafi hann tekið hann með sér á skólaball í Gamla bíói þar sem Palli var að spila. „Ég sagði honum bara að fara út í sal. Ekki átti hann von á að hver einasta manneksja ætti eftir að öskursyngja með hverju einasta lagi,“ segir Páll Óskar hlæjandi og bætir við: „Í stuttu máli þá algjörlega elskaði hann hverja mínútu við þetta og það var augnablikið sem ég sá að hér væri maðurinn minn mættur á svæðið og við ættum eftir að gera gott mót saman.“ Lærir íslensku í gegnum tónlist Palla Antonio, sem er flóttamaður frá Venesúela, talaði eingöngu spænsku þegar hann kom til landsins en lærir nú íslensku og ensku af kappi. Páll Óskar segir Antonio heillaðan af listamannalífi sínu og að hann nýti tónlist hans og texta til að læra íslenskuna. „Mér finnst svo kúl hjá honum að hann fíli þetta, sem er óalgengara en hitt. Starfið mitt er hvorki fjölskylduvænt né makavænt starf þar sem ég er að vinna á öðrum tímum heldur en flestir aðrir en hann fílaði þetta bara í botn,“ segir Páll Óskar. Þeir gengu í hjónaband við fallega athöfn heima í stofu 27. mars síðastliðinn. Þeir kynntust í janúar í fyrra í gegnum stefnumótaforritið Grindr, sem má segja að sé Tinder fyrir homma. Tók þrjár vikur að undirbúa brúðartertuna Páll Óskar segir að það hafi tekið langan tíma að undirbúa vagninn fyrir Gleðigönguna. Síðustu þrjár vikurnar segir hann vera mestu lætin. Þá gerist eitthvað á hverjum degi fyrir undirbúninginn. „Við byrjuðum að undirbúa öll hjörtun og dúfurnar, og föndruðum þetta heima hjá mér,“ segir Páll Óskar. Hugmyndina að vagninum átti Palli að sjálfsögðu sjálfur, enda táknrænn fyrir þann áfanga sem hann og Antonio hafa náð, að gifta sig á gamals aldri. Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir vagninn og eys Palli lofi yfir hjónin. „Þau hafa gert með mér vagnana síðustu ár og eru algjörir snillingar. Mér fannst það vera við hæfi að hafa brúðartertuna í ár, ekki bara vegna þess að við erum búnir að gifta okkur, heldur er þessi terta áminning um réttindin sem hommar og lesbíur hafa loksins fengið, því lengi vel máttum við ekki gifta okkur eins og annað fólk. Við vorum réttindalaus og ósynileg gagnvart lagabókstafnum og þessi brúðarterta var líka áminning um það.“ View this post on Instagram A post shared by Páll Óskar (@palloskar)
Ástin og lífið Gleðigangan Mest lesið Hafði ekki hugmynd hver Palli væri á balli í Gamla bíói Lífið Forsetagæinn hyggst hlaupa sitt lengsta hlaup til þessa Lífið Fundu ástina á ný eftir skilnað Lífið Fimm ákærðir í tengslum við andlát Perry Lífið Sunneva og Tanja ræða lýtaaðgerðirnar sínar Lífið Borgaði tvöfalt meira fyrir miklu minna Lífið Sóldís Vala er Ungfrú Ísland Lífið Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Menning Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Lífið samstarf Ungfrú Ísland: Svona svöruðu stúlkurnar lokaspurningunni Lífið Fleiri fréttir Hafði ekki hugmynd hver Palli væri á balli í Gamla bíói Forsetagæinn hyggst hlaupa sitt lengsta hlaup til þessa Fimm ákærðir í tengslum við andlát Perry Handtekinn í tengslum við andlát Matthew Perry Sunneva og Tanja ræða lýtaaðgerðirnar sínar Fundu ástina á ný eftir skilnað Ungfrú Ísland: Svona svöruðu stúlkurnar lokaspurningunni Sóldís Vala er Ungfrú Ísland Ungfrú Ísland í beinni útsendingu Benni þjálfari fann ástina hjá Jónbjörgu Kálhaus féll ekki í kramið Molly Mae og Tommy Fury hætt saman Ástin blómstrar í fjarlægð frá sviðsljósinu Heillandi einbýli fyrir 93 milljónir Borgaði tvöfalt meira fyrir miklu minna Ungfrú Ísland: Hver er líklegust til að hunsa skilaboð? Ásdís Rán 45 ára: „Drekktu kampavín í morgunmat ef þig langar“ Fullkominn forréttur sem þið verðið að prófa Jói Fel fór á skeljarnar Ætlar að verða léttur, ljúfur og kátur afi Allt í keng: „Veiðigleraugun eru okkar hjálmur“ Ungfrú Ísland í dag: „Saman geta konur sigrað heiminn“ Gunnar Nelson mætti á golfbíl „Get tekið hart á sjálfri mér þegar mér mistekst“ Upplifði fálæti lækna þegar lykkjan týndist inni í henni Ævintýralegt glæsibrúðkaup Rakelar og Andra í Bretlandi Blake Lively umdeild forsíðustúlka septemberblaðsins Gústi B leitar sér að vinnu Ætla aftur til Íslands til að græða sárin Sigmundur yrði líklega skutlaður af Kristjáni Loftssyni Sjá meira