Lífið

Fundu ástina á ný eftir skilnað

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Árni og Íris hafa fundið ástina á ný.
Árni og Íris hafa fundið ástina á ný. Skjáskot/Instagram

Leik­ar­inn Árni Bein­teinn Árna­son og tón­skáldið Íris Rós Ragn­hild­ar­dótt­ir hafa fundið ástina á ný eftir tveggja ára aðskilnað. Árni og Íris fóru hvort í sína áttina sumarið 2022 eftir að hafa verið gift í eitt ár.

Árni og Íris Rós giftu sig árið 2020 aðeins tvö í lítilli kirkju en höfðu síðan í hyggju að halda stærðarinnar brúðkaupsveislu og athöfn með vinum og fjölskyldu ári seinna. Allt kom fyrir ekki því kórónuveirufaraldurinn skyggði á þessar fyrirætlanir þegar Íris greindist með COVID nokkrum dögum fyrir stóra daginn og varði honum því ein í einangrun, reglum samkvæmt. 

Árni og Íris rötuðu í fréttirnar þegar vinir þeirra og listamennirnir, Björgvin Franz, Þórdís Björk, Króli og Júlí Heiðar, komu þeim skemmtilega á óvart með tónleikum í garðinum sem uppskar mikla gleði þrátt fyrir skrítnar aðstæður.

Árni Beinteinn er meðal annars þekktur fyrir hlutverk sín í Benedikt Búálfi og Skugga Sveini. Þau eiga soninn Aron Beintein sem er fjögurra ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.