Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bændasamtökin enn í viðræðum við ríkið um Hótel Sögu Viðræður standa enn yfir á milli Bændasamtaka Íslands og ríkisins um kaup á Hótel Sögu fyrir Háskóla Íslands. Þá er enn rætt við tvo aðila í hótelgeiranum, að sögn Gunnars Þorgeirssonar, formanns Bændasamtakanna. 22.10.2021 11:17
66 greindust innanlands í gær 66 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 24 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 36 prósent. 42 voru utan sóttkvíar, eða 64 prósent. 22.10.2021 10:13
Bein útsending: Á vakt fyrir Ísland Í dag og á morgun fer fram málþingið „Á vakt fyrir Ísland“, sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur fyrir. Á dagskrá eru ýmis erindi sem tengjast störfum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og umfjöllun um nokkur af stærri verkefnum þeirra síðasta ár. 22.10.2021 09:20
Stálu tveimur 170 þúsund króna úlpum úr verslun Bláa lónsins Lögregla á Suðurnesjum var kölluð út fyrr í vikunni þegar tilkynnt var um þjófnað á tveimur úlpum úr verslun Bláa lónsins. 22.10.2021 09:06
Sjötíu send heim vegna smits í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni Senda þurfti sjötíu nemendur í níunda bekk grunnskóla heim úr Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni í gær eftir að nemandi í búðunum greindist með Covid-19. 22.10.2021 09:00
Breyttar ábendingar um notkun magnýls gegn kransæðasjúkdóm „Þetta er nokkurn veginn í takt við það sem við höfum verið að gera hérna á Íslandi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi umræða kemur upp og það hefur verið að skýrast á undanförnum árum að aspirín er ekki jafn hættulítið og ávinningurinn kannski ekki jafn mikill og talið var.“ 22.10.2021 07:22
Létu sig hverfa án þess að borga reikninginn en skildu tösku eftir í bílnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og nótt en fyrsta verkefnið á vaktinni voru afskipti sem hafa þurfti af manni á heimili hans í Vesturbænum þar sem fíkniefni voru handlögð. 22.10.2021 06:55
Vilja kjarnaþjónustu í húsnæði við ný íþróttamannvirki KR Bygginganefnd Knattspyrnufélags Reykjavíkur, KR, hefur kynnt tillögur að viðamikilli uppbyggingu athafnasvæðis KR og er gert ráð fyrir að fyrsta skóflustungan að nýju knatthúsi og nýjum KR velli á næsta ári. Formaður knattspyrnudeildar KR segir meira felast í uppbyggingunni en nýr fótboltavöllur og áhorfendastúkur. 21.10.2021 23:00
Jóhannes uppljóstrari verðlaunaður í Svíþjóð Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari og fyrrverandi stjórnandi hjá Samherja í Namibíu, fékk sjálfbærnisverðlaun Gautaborgar í dag, sem kallast Win Win. hann fékk um fimmtán milljónir króna í verðlaunafé. 21.10.2021 22:37
Frekari sannanir fyrir því að Íslendingar voru í Ameríku löngu á undan Kólumbusi Enginn þarf lengur að velkjast í vafa um að fornsögurnar um fund Vínlands í kringum árið þúsund eru sannar. Vísindamönnum hefur núna tekist að tímasetja mjög nákvæmlega hvenær norrænir menn dvöldu í Ameríku nærri fimmhundruð árum á undan Kristófer Kólumbusi. 21.10.2021 22:22
Graðhestaskyr á Brúnastöðum: Skyrland opnað á Selfossi „Við krakkarnir fengum alltaf graðhestaskyr á Brúnastöðum“, sagði Guðni Ágústsson, fyrrverandi mjólkureftirlitsmaður hjá Mjólkurbúi Flóamanna og fyrrverandi ráðherra þegar nýjasta upplifundarsýning, Skyrland, var opnuð á Selfossi í kvöld í Mjólkurbúinu í miðbæ Selfoss. 21.10.2021 22:01
Aðalatriðið að fara ekki í „ásakanaleik fram og til baka“ Prófessor segir að óreiða í kringum endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi geti rýrt traust kjósenda á stjórnmálum. Aldrei muni nást algjör sátt um niðurstöðuna. 21.10.2021 21:30
Kynjakvóti tekinn upp í Versló Kynjakvóti hefur formlega verið tekinn upp hjá Verslunarskóla Íslands til að reyna að sporna gegn fækkun pilta í skólanum. Skólastjórinn segir nýjar reglur tryggja að hlutfall pilta í skólanum fari ekki undir fjörutíu prósent. 21.10.2021 20:20
Beiðnum um leit að börnum og ungmennum fjölgaði í september Talsverð aukning varð á beiðnum um leit að börnum og ungmennum sem bárust lögreglu í september en mánuðina þrjá á undan. Hegningarlagabrotum fækkaði hins vegar á milli mánaða. 21.10.2021 20:14
Þéttingarstefnan skapi íbúðaskort í Reykjavík Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Flokks fólksins í Reykjavík segja þéttingarstefnu meirihutans í húsnæðismálum eiga sinn þátt í að skapa skort á nýjum íbúðum í borginni. Formaður skipulags- og samgönguráðs segir hins vegar met hafa verið slegið í fjölda íbúða á undanförnum árum. 21.10.2021 19:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö verður farið yfir dóm sem kveðinn var upp í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur í Rauðagerðismálinu svokallaða. Angjelin Sterkaj var dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að bana Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar. Fréttamaður okkar Birgir Olgeirsson var í dómssal og fer yfir helstu atriði. 21.10.2021 18:02
Átök á Pablo Discobar: Rekstrarstjóri réðst að gesti með vínflösku Rektrarstjóri Pablo Discobar, skemmtistaðar sem nýlega var opnaður að nýju eftir eldsvoða í mars í fyrra, missti stjórn á skapi sínu í gærkvöldi. Lögreglan er með málið til rannsóknar. Rekstrarstjórinn er kominn í ótímabundið leyfi frá störfum. 21.10.2021 17:16
Læsa hliðum til að bregðast við áreiti karlmanns í Laugardal Knattspyrnufélagið Þróttur í Reykjavík hefur ákveðið að loka öllum nema einum aðgangi að gervigrasvelli sínum í Laugardal til að sporna við áreiti karlmanns gagnvart börnum í Dalnum. Íþróttastjóri Þróttar lýsir algjöru úrræðaleysi því þótt maðurinn sé endurtekið handtekinn er hann mættur jafnharðan á svæðið. 21.10.2021 15:50
Pawel segir met hafa verið slegið í fjölda nýrra íbúða í borginni Pawel Bartoszek formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur sagði í Pallborðinu á Vísi í dag að aldrei hefðu verið byggðar eins margar íbúðir í borginni og gert hefði verið á undanförnum árum. Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn og Kolbrún Baldursdóttur oddviti Flokks fólksins gagnrýndu hins vegar meirihlutann fyrir einstrengingslega stefnu í íbúðamálum. 21.10.2021 14:51
Sprengdu fallbyssukúlu sem vegfarandi afhenti lögreglu Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar sprengdi upp fallbyssukúlu í Þorlákshöfn á öðrum tímanum í dag. Um var að ræða virka kúlu frá seinni heimstyrjöldinni. 21.10.2021 14:32
Dómari gagnrýnir lögreglu fyrir vinnubrögð í Rauðagerðismálinu Guðjón St. Marteinsson, dómari í Rauðagerðismálinu, gagnrýnir vinnubrögð lögreglu við gerð skýrslu sem lögð var fyrir dóminn í málinu. Segir hann að lögregla hafi ekki gætt meginreglu um hlutlægnisskyldu við gerð skýrslunnar. Það sé ámælisvert. 21.10.2021 13:47
Píratar bæta við sig en Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Píratar mælast nú með 11,7 prósenta fylgi en fengu 8,6 prósent í Alþingiskosningunum. Viðreisn bætir einnig við sig og fer úr 8,3 prósentum í 10 prósent. Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn bæta lítillega við sig en Miðflokkurinn fer undir 5 prósent. 21.10.2021 12:40
Skólastjórar í næturvinnu við að rekja smit Umfangsmiklar smitrakningar í grunnskólum valda álagi á stjórnendur skólanna sem þurfa að sjá um rakninguna. Formaður Skólastjórafélags Íslands segir ekki ganga að að verkefnið sé á herðum skólastjórnenda þar sem þeir séu í fullri vinnu fyrir. 21.10.2021 12:15
Ártalið sýni að Íslendingasögurnar hafi verið á réttu róli Rannsóknarprófessor við Árnastofnun segir fornleifauppgröft í Nýfundnalandi staðfesta tilgátur íslenskra fræðimanna um hvenær fólk frá Íslandi og Grænlandi hafi búið á svæðinu. Hann segir ánægjulegt að nú sé hægt að segja til um nákvæmt ártal sem. 21.10.2021 12:09
„Síðasti naglinn í líkkistu þessara kosninga“ Oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi sem kærði framkvæmd Alþingiskosninganna er viss um að uppkosning fari fram í kjördæminu, sérstaklega í ljósi þeirra gagna sem komu fram í málinu í gær. Það sé eini möguleikinn í stöðunni. 21.10.2021 12:05
Tekist var á um húsnæðismálin í Pallborðinu Í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi klukkan 12:30 fær Heimir Már Pétursson fréttamaður til sín Pawel Bartoszek formann skipulags- og samgönguráðs, Eyþór Arnalds oddvita Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn og Kolbrúnu Baldursdóttur oddvita Flokks fólksins í borgarstjórn til að ræða deildar meiningar um stöðu húsnæðismála og framboð á nýjum íbúðum í Reykjavík. 21.10.2021 11:41
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um niðurstöðu héraðsdóms í Rauðagerðismálinu en dómur féll í þessu umtalaða sakamáli í morgun. 21.10.2021 11:35
Anton Kristinn og sakborningar féllust í faðma Anton Kristinn Þórarinsson, sem sætti gæsluvarðhaldi í Rauðagerðismálinu en var ekki ákærður, fagnaði með sakborningum sem sýknaðir voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Anton féllst í faðma með ákærðu í morgun. 21.10.2021 11:00
Höfðu hendur í hári stórtæks síbrotamanns eftir árekstur og afstungu Landsréttur hefur staðfest niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að stórtækur þjófur með langan brotaferil að baki skuli sitja í gæsluvarðhaldi til 4. nóvember næstkomandi. Samtals er 31 opið mál á borði lögreglu sem tengist manninum. Lögregla handsamaði manninn á stolnum bíl eftir árekstur og afstungu. 21.10.2021 10:49
Lögmaður Antons harðorður: „Mesta klúður sem ég hef séð“ Steinbergur Finnbogason lögmaður vill meina að rannsókn lögreglu á Rauðagerðismálinu sé eitt það mesta klúður sem hann hefur orðið vitni að. Hann boðar skaðabótamál fyrir hönd Antons Kristins Þórarinssonar, skjólastæðins síns. 21.10.2021 10:43
Sprengjan í Þorlákshöfn reyndist vera eftirlíking Sprengjudeildir Landhelgisgæslunnar og sérsveitar Ríkislögreglustjóra voru kallaðar til á áttunda tímanum í morgun vegna torkennilegs hlutar sem fannst á gámasvæðinu í Þorlákshöfn. Aðgerðum lauk um klukkan um klukkan 13 og reyndist engin hætta vera á ferðum. 21.10.2021 10:42
44 greindust með kórónuveiruna í gær 44 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 21.10.2021 10:38
„Það verða eftirmálar af þessu“ Oddgeir Einarsson, lögmaður Angjelin Sterkaj, segir fangelsisdóm í málinu gegn honum í takt við væntingar, þar sem hann hafði játað morðið á Armando Beqirai. Verjandi Murat Selivrada var afar harðorður í garð ákæruvaldsins og sagði málinu ekki lokið. 21.10.2021 09:11
Angjelin dæmdur í sextán ára fangelsi Angjelin Sterkaj var dæmdur í sextán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa myrt Armando Beqirai, fjölskylduföður á fertugsaldri, með því að skjóta hann fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar. 21.10.2021 08:53
Sóttu sjómann sem fékk togvír í andlitið Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöldi vegna skipverja á togara sem fékk togvír í andlitið. 21.10.2021 07:55
Hlýtt loft á leiðinni Veðrið verður með rólegasta móti víðast hvar um land í dag. Á morgun er hins vegar von á skilum upp að suðvesturhorni landsins með vaxandi suðaustanhátt og hlýju lofti. 21.10.2021 07:25
Nútímavæðing og velsæld þjóðarinnar hafi ætíð byggt á samskiptum við útlönd Nútímavæðing Íslands og velsæld Íslendinga á hverjum tíma fyrir sig í sögunni, hefur fyrst og fremst á byggt á samskiptum Íslands við útlönd. 21.10.2021 07:00
Dómur í Rauðagerðismálinu kveðinn upp í dag Uppfært klukkan 8:52:Angjelin Sterkaj hefur verið dæmdur fangelsi í 16 ár fyrir morðið á Armando Beqirai, fjölskylduföður á þrítugsaldri, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar.Ákærðu Claudia Sofia Coelho Carvalho, Murat Selivrada og Shpetim Qerimi eru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins. 21.10.2021 06:41
Framvísuðu fölsuðu umboði á lögreglustöð Heldur sérstök uppákoma átti sér stað á lögreglustöðinni í Flatahrauni í Hafnarfirði í gær, þegar þangað mættu tvær konur til að sækja lykla að bifreið. Sögðu þær lögreglu hafa gert lyklana upptæka þegar önnur þeirra var stöðvuð, grunuð um akstur undir áhrifum fíkniefna. 21.10.2021 06:37
Beraði sig fyrir ungmennum á íþróttaæfingu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í Laugardalnum um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Henni hafði þá borist tilkynning um ölvaðan mann sem var sagður láta ófriðlega og vera að bera sig fyrir ungmennum á íþróttaæfingu. 21.10.2021 06:26
Útsýnispallur leiði ferðafólk í kaffi og kleinur í Skálavík Eigendur eyðijarðar í Skálavík, vestan Bolungarvíkur, sjá fram á að útsýnispallurinn á Bolafjalli komi til með að hafa svo mikið aðdráttarafl að grundvöllur verði til að opna kaffihús. Bóndabær, sem fór í eyði fyrir hartnær sextíu árum, muni þannig lifna við. 20.10.2021 22:11
ASÍ telur verulega hættu á að erlendir fjárfestar skilji lítið annað eftir en tóma skel Miðstjórn Alþýðusambands Íslands varar sterklega við sölu Mílu til erlendra fjárfesta. Sambandið segir verulega hættu á því að erlendir eigendur dragi úr fjárfestingum og viðhaldi á innviðum, selji eignir og skilji lítið annað eftir en eintóma skel. 20.10.2021 22:01
„Þetta snýst um réttlæti ekki þægindi“ Fyrrverandi Alþingismaður segir ekkert annað í stöðunni eftir fregnir dagsins en að blása til nýrra þingkosninga. Lögreglan á Vesturlandi gaf út í dag sektir á meðlimi yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi en ekki er hægt að fullyrði hvort átt hafi verið við óinnsigluð kjörgögn í talningarsalnum á Hótel Borgarnesi. 20.10.2021 21:31
Söngleikur til minningar um Rúnar Júlíusson Andi Rúnars Júlíussonar heitins svífur yfir vötnum í Keflavík þessa dagana því nú er verið að setja upp söngleikinn „fyrsti kossinn“ honum til heiðurs hjá Leikfélagi Keflavíkur. Sýningin verður sú hundraðasta í sögu félagsins, sem fagnar nú sextíu ára afmæli. 20.10.2021 21:00
„Hann er að setja alla í sínu nærumhverfi í stórhættu“ Strætóbílstjóri sem tók upp myndband fyrir samfélagsmiðla undir stýri fær ekki að aka á meðan unnið er úr máli hans innan Strætó bs. Fordæmi eru fyrir því að bílstjórar séu áminntir eða reknir fyrir annað eins. 20.10.2021 20:31