Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Fram 25-27 | Víkingar enn í leit að fyrsta sigrinum Framarar gerðu góða ferð í Víkina í kvöld og lögðu nýliða Víkings að velli í Olís deildinni í handbolta. 24.10.2021 20:55
Umfjöllun og viðtöl: KA - Valur 26-35 | Þægilegur sigur Vals fyrir norðan Valur vann afar sannfærandi sigur á KA mönnum á Akureyri í dag. Heimamenn sáu aldrei til sólar. Lokatölur 26-35 þar sem gestirnir léku á alls oddi. Leikurinn var liður í fimmtu umferð Olís deildar karla. Fyrir leikinn hafði gengi liðanna í deildinni verið ólíkt. Valur unnið fyrstu fjóra leiki mótsins á meðan KA hafði unnið tvo leiki en síðan tapað tveimur leikjum. 24.10.2021 20:30
Fjölnir vann öruggan sigur á Skallagrími Fjölniskonur unnu öruggan sigur á Skallagrími í Subway deildinni í körfubolta í Dalhúsum í kvöld. 24.10.2021 20:29
Snorri Steinn: Flestir þættir sem tikkuðu í dag „Við vorum frábærir strax frá byrjun. Björgvin var geggjaður í markinu og við gengum eiginlega bara á lagið. Við vissum að KA menn yrðu brothættir í dag þar sem þeir eru búnir að tapa tveimur leikjum í röð þannig það var sterkt að byrja þetta svona vel. Menn héldu bara áfram og lögðu klárlega grunninn að þessu í fyrri hálfleik. Við hefum meira segja geta verið meira yfir í hálfleik,“ sagði Snorri Stein Guðjónsson þjálfari Vals eftir níu marka sigur á KA mönnum í KA heimilinu í dag. 24.10.2021 20:25
Slæmt tap Alberts og félaga Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson lék allan leikinn fyrir AZ Alkmaar þegar liðið heimsótti Groningen í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 24.10.2021 20:20
Jón Gunnlaugur: Hallar á okkur í hverjum einasta leik Jón Gunnlaugur Viggósson, þjálfari nýliða Víkings í Olís deildinni í handbolta er ósáttur með dómgæsluna í fyrstu umferðum mótsins. 24.10.2021 20:17
Aron Kristjánsson: Við vorum með gott forskot mest allan leikinn Haukar unnu góðan sjö marka sigur á Gróttu í 5. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Haukar höfðu góða forystu bróðurpart leiksins og var Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka að vonum sáttur með sigurinn. 24.10.2021 20:12
Solskjær: Minn versti dagur Manchester United hefur sjaldan séð verri daga en í dag eftir að liðið beið lægri hlut fyrir erkifjendum sínum í Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. 24.10.2021 18:40
Mourinho og Spalletti sáu rautt í markalausu jafntefli Roma og Napoli Fullkomin byrjun Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta tók enda í dag þegar liðið heimsótti lærisveina Jose Mourinho í Roma. 24.10.2021 18:11
Dramatískur sigur hjá Midtjylland í Íslendingaslag Það var boðið upp á Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þar sem dramatíkin réði ríkjum. 24.10.2021 17:59
Liverpool lék sér að sögulega slöku liði Man Utd Liverpool lék sér að erkifjendum sínum í Manchester United þegar liðin áttust við á Old Trafford í Manchester í dag í stórleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni. 24.10.2021 17:29
Ólafur spilaði í naumu tapi gegn PSG Ólafur Andrés Guðmundsson og félagar í Montpellier töpuðu með minnsta mun fyrir PSG í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. 24.10.2021 17:16
Þýski handboltinn: Bjarki Már skoraði ellefu mörk í sigri Lemgo Bjarki Már Elísson var heldur betur með miðið rétt stillt þegar að Lemgo mætti í heimsókn til Minden í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Skoraði ellefu mörk í þriggja marka sigri. 24.10.2021 16:45
Real Madrid vann El Clasico Real Madrid bar sigurorð af Barcelona í hinum sögufræga leik við Barcelona, El Clasico, í dag. Real Madrid hafði yfirhöndina allan leikinn eftir að hafa komist yfir í hálfleik og unnu að lokum sigur, 1-2. 24.10.2021 16:15
Svíþjóð: Sveinn Aron með tvennu í sigri Landsliðsframherjinn Sveinn Aron Guðjohnsen var í banastuði þegar að lið hans, Elfsborg, fékk Sirius í heimsókn í sænsku úrvalsdeildinni, Allsvenskunni, í dag. Þá vann Hammarby ótrúlegan sigur eftir að hafa lent undir. 24.10.2021 15:45
Antonio sökkti Tottenham West Ham sigraði Tottenham í Lundúnaslagnum í dag. Það var Michail Antonio sem var hetja West Ham enn og aftur, en hann skoraði sigurmarkið á 72. mínútu. 24.10.2021 15:00
Maddison hetja Leicester í sigri á Brentford Leicester mætti í heimsókn til Brentford í dag í ensku úrvalsdeildinni. Eftir jafnan leik þá tókst Leicester að knýja fram sigur í lokin með marki frá James Maddison. Flott úrslit fyrir Leicester, sem er óðum að komast á beinu brautina í deildinni. 24.10.2021 15:00
ÍBV áfram í Evrópubikarnum eftir frábæran sigur Kvennalið Íþróttabandalags Vestmannaeyja gerði sér lítið fyrir og sneri einvígi sínu gegn PAOK í Þessalóníku á Grikklandi sér í vil með góðum sjö marka sigri í dag, 29-27. PAOK vann fyrri leikinn með fimm mörkum. 24.10.2021 14:31
Danmörk: Brøndby vann slaginn um Kaupmannahöfn | Íslendingar í eldlínunni Það var mikið í gangi í dönsku úrvalsdeildinni, Superligunni, í dag en stærsti leikurinn var án efa Kaupmannahafnarslagur Brøndby og FC Kaupmannahafnar. Brøndby vann leikinn 2-1 og komst með sigrinum upp í efri hluta deildarinnar. 24.10.2021 14:15
Magdeburg áfram taplaust eftir sigur á Kiel Magdeburg bar sigurorð af Kiel í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag. Staðan í hálfleik var 15-16, Magdeburg í hag. Leikurinn var jafn á öllum tölum en Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og félagar í Magdeburg höfðu að lokum sigur, 27-29. 24.10.2021 13:45
Rangers á toppinn eftir sigur Annað af risaliðum Skotlands, Glasgow Rangers, var í eldlínunni í dag þegar að liðið mætti St. Mirren á útivelli. Lærisveinar Steven Gerrard lentu undir strax í byrjun en náðu að kjýja fram sigur, 1-2, þrátt fyrir það. 24.10.2021 13:00
Spretthlaupari skotinn til bana Ekvadorinn Alex Quinonez, sem vann til verðlauna á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum 2019, var skotinn til bana í borginni Guayaquil í Ekvador síðastliðið föstudagskvöld. 24.10.2021 12:02
Atlanta Braves í úrslit MLB deildarinnar | Mæta óvinsælasta liði Bandaríkjanna Þá er ljóst hvaða tvö lið munu mætast í heimsseríunni í bandarísku hafnaboltadeildinni, MLB. Atlanta Braves sigraði Los Angeles Dodgers í nótt, 4-2, og þar með seríuna í sex leikjum. Atlanta mætir hinu óvinsæla Houston Astros, sem sló út Boston Red Sox. 24.10.2021 11:30
Verstappen á ráspól í dag Max Verstappen átti besta tímann í tímatökunni fyrir bandaríska kappaksturinn í Formúlu 1, en keppt er í Texas. Verstappen tryggði sér ráspól, og þar með bestu upphafsstöðuna í kappakstrinum sem fer fram seint í kvöld. 24.10.2021 10:30
Úrslit næturinnar í NBA: Doncic frábær í fyrsta sigri Kidd Átta leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í gærkvöldi. Jason Kidd vann sinn fyrsta sigur sem aðalþjálfari Dallas Mavericks þegar að liðið bar sigurorð af Toronto Raptors í Kanada í gær. Luka Doncic skoraði 27 stig, tók 9 fráköst og gaf 12 stoðsendingar fyrir Dallas. 24.10.2021 09:30
Viðræður við Fonseca vel á veg komnar Portúgalski knattspyrnustjórinn Paulo Fonseca verður að öllum líkindum maðurinn sem fær starfið sem allir eru að tala um í fótboltaheiminum í dag hjá Newcastle United. 24.10.2021 08:00
Dagskráin í dag - Tvíhöfði í NFL Það er nóg um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag og fjölbreytt úrval íþrótta í boði. 24.10.2021 07:00
„Ekki hægt að vera undir meiri pressu en ég er núna“ Barcelona fær Real Madrid í heimsókn í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta á morgun og Ronald Koeman, stjóri Barcelona, veit nákvæmlega hversu mikla þýðingu leikurinn gæti haft fyrir framtíð sína. 23.10.2021 23:31
Edward Gaming í undanúrslit eftir oddaleik Edward Gaming og Royal Never Give Up áttust við í átta liða úrslitum Heimsmeistaramótsins í League of Legends í dag. Viðureignin fór alla leið í oddaleik þar sem Edward Gaming hafði betur. 23.10.2021 22:46
Zlatan sá fjórði á fimmtugsaldri til að skora í Serie A Sænska goðsögnin Zlatan Ibrahimovic er hvergi af baki dottinn þrátt fyrir að vera kominn á fimmtugsaldurinn. 23.10.2021 22:05
Látinn taka pokann sinn eftir algjört hrun Knattspyrnustjóri enska B-deildarliðsins Cardiff City var rekinn úr starfi sínu í dag eftir að liðið spilaði sinn fimmta leik í röð án þess að skora mark. 23.10.2021 21:15
Sjálfsmark frá Zlatan og tvö rauð spjöld í sex marka leik Síðasti leikur dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni var viðureign Bologna og AC Milan og er óhætt að segja að áhorfendur hafi fengið allt fyrir peninginn. 23.10.2021 20:51
Martin stigahæstur í hádramatískum sigri Martin Hermannsson sýndi magnaða frammistöðu þegar Valencia hafði betur gegn Morabanc Andorra í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. 23.10.2021 20:37
Guðlaugur Victor spilaði allan leikinn í sigri Guðlaugur Victor Pálsson hóf leik á miðju Schalke 04 sem fékk Dynamo Dresden í heimsókn í þýsku B-deildinni í fótbolta í kvöld. 23.10.2021 20:27
Gylfi ekki með í Football Manager Knattspyrnumanninn Gylfa Þór Sigurðsson er hvergi að finna í frumútgáfunni af næsta Football Manager. Frá þessu segir í frétt á vef mbl.is. 23.10.2021 20:01
3. umferð lokið í CS:GO, Dusty, Þór og XY enn á toppnum Þriðju umferð Vodafonedeildarinnar í CS:GO lauk í gær þegar Dusty burstaði Kórdrengi 16-3. Leikir umferðarinnar voru spennandi en staðan nokkuð óbreytt. 23.10.2021 19:01
Elías Már og félagar færast nær fallsvæðinu Elías Már Ómarsson lék tæplega hálftíma fyrir Nimes gegn Guingamp í frönsku B-deildinni í fótbolta í kvöld. 23.10.2021 18:52
Stefán: Gerðum þá breytingu að spila vörnina eins og við ætluðum að gera Stefán Arnarson var ánægður með hvernig Fram sneri dæminu sér í vil í seinni hálfleik gegn KA/Þór í dag. 23.10.2021 18:31
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram - KA/Þór 27-25 | Framkonur sterkari á svellinu undir lokin Fram vann góðan sigur á Íslands- og bikarmeisturum KA/Þórs, 27-25, í Safamýrinni í Olís-deild kvenna í dag. 23.10.2021 18:30
Meistararnir kláruðu Brighton í fyrri hálfleik Góður fyrri hálfleikur Englandsmeistara Manchester City tryggði þeim sigur á Brighton í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 23.10.2021 18:20
Arnór spilaði hálftíma í tapi Íslendingalið Venezia sótti ekki gull í greipar Sassuolo í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 23.10.2021 18:02
Tryggvi Snær lét til sín taka í sigri Zaragoza Íslenski landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason stóð fyrir sínu þegar lið hans, Zaragoza, vann góðan sigur í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. 23.10.2021 17:54
Selfyssingar úr leik eftir tap í Slóveníu Selfoss er úr leik í Evrópubikarkeppninni í handbolta eftir að hafa tapað gegn Jeruzalem Ormoz á útivelli í dag. 23.10.2021 17:48
Dagskráin í dag - Tvíhöfði í NFL Það er nóg um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag og fjölbreytt úrval íþrótta í boði. 23.10.2021 17:11
Orri Freyr fór mikinn í öruggum sigri toppliðsins Orri Freyr Þorkelsson og félagar í norska handboltaliðinu Elverum eru með fullt hús stiga á toppi norsku úrvalsdeildarinnar. 23.10.2021 17:02