Blaðamenn Stundarinnar sýknaðir af kröfum Glitnis Holdco
Blaðamenn Stundarinnar og Reykjavík Media voru í Hæstarétti í dag sýknaðir af kröfum Glitnis Holdco þess efnis að þeim hefði borið að afhenda Glitni gögn sem blaðamennir höfðu undir höndum um viðskiptavini bankans. Ritstjóri Stundarinnar segir niðurstaðan ánægjuleg en á sama tíma sé það sorglegt að hægt hafi verið að ráðast gegn ritfrelsi með lögbanninu á sínum tíma.