Tveir greindust með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn
Tveir greindust með kórónuveiruna síðasta sólarhringinn, annar við landamæraskimun og hinn hjá íslenskri erfðagreiningu. Virk veirusmit í landinu eru tólf talsins. Fjögur hundruð og fimmtán eru í sóttkví.