Ákærður fyrir gróf kynferðisbrot og hótanir í garð þroskaskertra kvenna
55 ára karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum sem allar glíma við þroskaskerðingu. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en þinghald er lokað eins og tíðkast í kynferðisbrotamálum.