Fleiri grunnskólabörn sitja heima í næstu viku
Fleiri grunnskólar í Reykjavík munu láta hluta skólabarna sitja heima í næstu viku vegna vinnustöðvunar Eflingarfólks. Víða stefnir jafnframt í að hátíðahöld vegna öskudagsins séu í uppnámi. Enginn fundur hefur enn verið boðaður í deilunni.