Vill sjá höfuðstöðvar Landsbankans á Selfossi
Bæjarfulltrúi í Árborg gagnrýnir Landsbankann fyrir að vera búin að setja útibú bankans á Selfossi á sölu. Miklu nær væri að bankinn myndi flytja höfuðstöðvar sínar í húsið í stað þess að vera að eyða milljörðum í byggingu nýrra höfuðstöðva í miðbæ Reykjavíkur.