Þjóðskrá Íslands var sýknuð í Héraðsdómi
Þjóðskrá Íslands var sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af öllum kröfum albanskra foreldra 22 mánaða stúlku sem fæddist hér á landi. Þjóðskrá skráði lögheimili stúlkunnar sem ótilgreint í Evrópu en ekki var fallist á kröfu foreldranna um að því yrði breytt. Fjölskyldunni verður að óbreyttu vísað úr landi.