Félagar úr Versló opna netverslun

Þrír félagar, Kjartan Þórisson, Viktor Margeirsson og Jón Hilmar Karlsson, í Verzlunarskóla Íslands ætla sér stóra hluti þegar kemur að netverslun á Íslandi. 10. febrúar næstkomandi opna vinirnir umfangsmikla netverslun sem færir saman margar af flottustu fataverslunum landsins þar sem Íslendingar geta keypt tískufatnað allan sólarhringinn og fá vöruna senda frítt heim.

4192
00:58

Vinsælt í flokknum Lífið