Akraborgin- „Ógeðslegt að fá hráku í andlitið“
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði karlaliðs Vals í fótbolta ræddi við Akraborgina um hrákuna sem hann fékk í andlitið frá leikmanni Skagamanna í miðjum leik liðanna í gærkvöld. Valur vann leikinn, 4-2 og vonast Haukur til þess að liðið sé komið aftur á beinu brautina eftir jafntefli gegn ÍBV á heimavelli í þarsíðustu umferð.