Í bítið: Óli Tölva um Facebook og Skype samstarfið
Facebook og Skype munu innan skamms setja í loftið nýtt myndspjall á vefsíðunni. Nú eru notendur Facebook orðnir 750 milljónir manna, sem jafngildir að níundi hver maður í öllum heiminum noti Facebook. Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook og framkvæmdastjóri fyrirtækisins, tilkynnti þetta á blaðamannafundi í dag.