Bakaríið: Sundbannið mikla
Atla var meinað að fara með börnin í sund vegna ákveðinna reglna sem hann kannaðist ekki við. Hann og Halli leita til sérfræðings til að grennslast fyrir um stefnu sundlauga í Hafnarfirði þegar kemur að því að taka börnin með sér í sund.