176 manns fórust í flugslysi
63 Kanadamenn og tíu Svíar eru sagðir hafa verið um borð í farþegavélinni sem fórst skömmu eftir flugtak frá alþjóðaflugvellinum í írönsku höfuðborginni Teheran í morgun. Allir um borð í vélinni, alls 176, fórust í slysinu, en vélin var á leið frá Teheran til Kænugarðs í Úkraínu.