Ragnar Þór segir seðlabankastjóra ganga erinda fjármagnseigenda Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, telur einsýnt að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri beri hag bankanna og fjármagnseigenda fyrst og síðast fyrir brjósti. Viðskipti innlent 23. nóvember 2022 10:01
Segir krónutöluhækkanir gætu jafngilt kaupmáttarrýrnun hjá stórum hópum Friðrik Jónsson, formaður BHM, segir kaupmátt láglaunafólks hafa hækkað sexfalt á við aðra frá gerð lífskjarasamningsins. Hann segir að ef krónutöluhækkanir verða aftur ráðandi við gerð kjarasamninga gæti það jafngilt kaupmáttarrýrnun fyrir stóran hluta launafólks. Innlent 23. nóvember 2022 07:53
Veitingamenn óttast að launakröfur ríði bransanum á slig Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT), segir ískyggilegar horfur í greininni ef kröfur verkalýðshreyfinganna Eflingar og Matvís gangi eftir. Innlent 22. nóvember 2022 11:19
Nálgun stærsta stéttarfélagsins í Þýskalandi á „skylt“ við áherslur SA Stærsta verkalýðsfélag Þýskalands samdi um kjarasamninga sem eru nokkuð undir verðbólgu þar í landi. „Þessi hugmyndafræði í Þýskalandi,“ segir efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins, „á skylt við það sem við höfum lagt áherslu á að launaþróun samræmist lítilli verðbólgu og samkeppnishæfni atvinnulífsins.“ Innherji 22. nóvember 2022 07:00
Boltinn er enn hjá vinnumarkaðnum Það kom mörgum á óvart þegar peningastefnunefnd Seðlabanks ákvað að hækka vexti um aðeins 0,25 prósentustig í október síðastliðnum. Vextir höfðu þá hækkað um 3,5 prósentustig á árinu og verðbólga 9,3% - langt yfir 2,5% verðbólgumarkmiðinu. Á sama tíma, sem kom kannski enn meira á óvart, gaf seðlabankastjóri í skyn að ekki myndi endilega koma til frekari vaxtahækkana. Skoðun 21. nóvember 2022 09:30
Samflot iðn- og tæknifólks vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara Samninganefndir allra stéttarfélaga iðn- og tæknifólks hafa ákveðið að vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara en kjarasamningar hafa verið lausir síðan 1. nóvember sl. Innlent 16. nóvember 2022 20:32
Engin ástæða til gífuryrða strax Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir leitt að heyra ummæli formanns VR um að hugmyndir vinnuveitenda við kjarasamningsborðið séu allt að því niðurlægjandi. Engin ástæða sé til gífuryrða strax. Innlent 14. nóvember 2022 19:31
Verkefnið áfram að verja kaupmátt heimilanna „Verkefnið er áfram hið sama: að ná samningum hratt og örugglega til að verja kaupmátt heimilanna,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir greindi frá því fyrr í dag að VR, Landssamband ísl. verzlunarmanna og Starfsgreinasamband Íslands hefðu tekið þá ákvörðun að vísa viðræðum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Innlent 14. nóvember 2022 15:42
VR/LÍV og SGS vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara VR, Landssamband ísl. verzlunarmanna og Starfsgreinasamband Íslands hafa tekið þá ákvörðun að vísa viðræðum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Lífskjarasamningurinn, sem undirritaður var árið 2019, rann út um síðustu mánaðamót. Innlent 14. nóvember 2022 13:49
Þrjátíu og tvær stundir eða fjögurra daga vinnuvika Í þeim kjarasamningaviðræðum sem nú standa yfir fer VR fram með kröfu um 4-daga vinnuviku. Það þýðir einfaldlega að við viljum stytta vinnuvikuna í 32 stundir, án skerðingar á launum. Þessi krafa er orðin æ háværari, ekki bara hér á landi heldur víða erlendis. Skoðun 11. nóvember 2022 09:30
Borgar sig síður að fara í skóla vegna krónutöluhækkana Krónutöluhækkanir síðustu ára hafa leitt til þess að það borgar sig síður hér á landi en annars staðar að fara í skóla, segir hagfræðingur BHM. Um fjórðungur Íslendinga er einungis með grunnskólapróf og hlutfallið er það hæsta á Norðurlöndum. Innlent 10. nóvember 2022 14:30
Bein útsending: BHM kynnir áherslur sínar í kjaraviðræðum Fulltrúar BHM munu kynna sameiginlegar áherslur allra aðildarfélaga sinna í kjaraviðræðunum framundan á opnum fundi í Grósku í Reykjavík sem hefst klukkan 9:30. Innlent 10. nóvember 2022 09:00
Segir millitekjufólk í vandræðum Formaður Starfsgreinasambandsins segir kröfugerð Eflingar raunhæfa og vel unna. Nauðsynlegt væri að ná fram krónutöluhækkun enda hafi framfærslukostnaður launafólks hækkað svo gríðarlega að nú væri millitekjufólk að berjast í bökkum. Innlent 1. nóvember 2022 13:16
„Ekkert annað en eðlilegt og réttlátt“ Efling krefst 167 þúsund króna krónutöluhækkunar allra launa á næstu þremur árum. Þetta kemur fram í kröfugerð sem félagið hefur afhent Samtökum atvinnulífsins. Þá krefst félagið þrjátíu daga orlofs fyrir alla félagsmenn auk þess sem ræða þurfi af fullri alvöru um styttingu vinnuvikunnar hjá félagsmönnum. Formaður Eflingar telur kröfur þess sanngjarnar og raunsæjar. Innlent 31. október 2022 21:16
Efling krefst 167 þúsund króna hækkunar allra launa á þremur árum Efling hefur afhent Samtökum atvinnulífsins kröfugerð fyrir komandi kjarasamningsviðræður sem hljóðar meðal annars upp á 167 þúsund króna hækkun allra mánaðarlauna á þriggja ára samningstíma. Innlent 31. október 2022 13:16
Í eina sæng fyrir kjaraviðræður við SA Landssamband íslenzkra verzlunarmanna og Starfsgreinasambandið munu taka höndum saman í viðræðum við Samtök atvinnulífsins í viðræðum um nýjan kjarasamning. Innlent 26. október 2022 13:34