Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Grænlendingar hafa sagt sig úr Norðurlandaráði í mótmælaskyni við það sem forsætisráðherrann kallar mismunun meðlima ráðsins. 8.5.2024 17:03
Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu Niðurstöður mælinga á hraunflæði í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni benda til þess hraunflæði fyrsta klukkutíma gossins hafi verið 1100 til 1200 rúmmetrar á sekúndu en síðan hafi dregið hratt úr, og það verið komið niður í um 100 rúmmetra eftir sex til átta klukkustundir. Áfram hafi dregið úr hraunrennsli og meðaltalið 17. til 20. mars um fimmtán rúmmetrar. Fyrri hluta apríl hafi það verið þrír til fjórir rúmmetrar og mælingarnar benda til þess að það hafi verið um eða innan við einn rúmmetri síðustu tvær vikurnar. 8.5.2024 16:37
Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar á fyrsta ársfjórðungi nam 10,7 milljörðum kr. og handbært fé frá rekstri 14 milljörðum króna. Erfið staða í vatnsbúskap fyrirtækisins og skerðingar sökum hennar settu nokkurn svip á afkomu fyrirtækisins á ársfjórðungnum. 8.5.2024 15:54
Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Í dag var skrifað undir samkomulag sem formlega bindur enda á meira en aldarlöng afnot Orkuveitunnar og forvera hennar af Elliðaánum til raforkuvinnslu. Í samkomulaginu er kveðið á um hvernig Orkuveitan muni skila dalnum til borgarinnar um næstu áramót. Jafnframt samdi Reykjavíkurborg við Veitur um brúarsmíð og eflingu umhverfisverndar í dalnum. 8.5.2024 14:49
Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Skúli Tómas Gunnlaugsson, læknir sem grunaður er um að hafa mögulega valdið ótímabærum andlátum níu sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á árunum 2018 til 2020, sinnir af og til sjúklingum á Landspítalanum. 8.5.2024 14:08
Kannabis en ekki kjólar í kassanum Karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til að flytja inn 4,5 kíló af kannabisefnum. Hann reyndi að koma efnunum til landsins í hraðsendingu sem var merkt kvenfatnaði. 8.5.2024 12:13
Forsetaefni tókust á um forsetavaldið Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, stóð fyrir hádegismálþingi með frambjóðendum til embættis forseta Íslands. Rætt var um beitingu valds forseta auk þess sem tekið var við spurningum úr sal. 8.5.2024 11:31
Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Litlu mátti muna að slys yrðu á fólki þegar hjól losnaði undan strætisvagni sem ekið var vestur Miklubraut um miðjan mars síðastliðinn. Myndskeið sýnir hvernig hjólið skoppar á hús og fer illa með svalir þess. 8.5.2024 10:57
Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Enok Vatnar Jónsson, sjó- og athafnamaður, hefur verið ákærður fyrir tvær grófar líkamsárásir. Við framkvæmd annarrar þeirra henti hann brotaþola niður tröppur. 7.5.2024 17:03
Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt Gæsluvarðhald yfir íslenskum karlmanni sem handtekinn var í tengslum við þjófnað á tuttugu til þrjátíu milljónum króna hefur verið framlengt. 7.5.2024 15:39