Kjóstu leikmann mánaðarins í Bestu deild karla Þrír leikmenn frá Stjörnunni, tveir frá Víkingi Reykjavík, einn frá FH, einn Framari og einn leikmaður Breiðabliks eru tilnefndir í kjörinu á besta leikmanni ágústmánaðar í Bestu deild karla í fótbolta. Tilkynnt var um tilnefningarnar í Stúkunni á Stöð 2 Sport á dögunum. 30.8.2023 14:00
Segir Orra minna sig á eina af skærustu stjörnum Dana á sínum tíma Orri Óskarsson, framherji danska úrvalsdeildarfélagsins FC Kaupmannahöfn, er nýliði í landsliðshópi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta sem á fyrir höndum leiki gegn Lúxemborg og Bosníu & Herzegovinu í undankeppni EM 2024. Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands hefur miklar mætur á framherjanum unga. 30.8.2023 12:30
Åge ánægður með nýjustu tíðindi af Gylfa: „Mun fylgjast vel með honum“ Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag fyrir komandi verkefni liðsins í undankeppni EM 2024. Þar var hann meðal annars spurður út í Gylfa Þór Sigurðsson. 30.8.2023 11:28
Mögnuð tilþrif Rúnars Alex í frumrauninni vekja athygli Íslenski landsliðsmarkvörðurinn í fótbolta, Rúnar Alex Rúnarsson lék sinn fyrsta leik fyrir enska liðið Cardiff City í gær er liðið heimsótti Birmingham City í enska deildarbikarnum og óhætt er að segja að tilþrif Rúnars í leiknum hafi vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. 30.8.2023 11:00
Þjálfaramál Breiðabliks skýrist á allra næstu dögum: „Ekki léttvæg skref að stíga“ Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks segir ákvörðunina um að binda endi á samstarfs félagsins við þjálfarann Ásmund Arnarsson, sem hafði stýrt kvennaliði félagsins frá því um haustið 2021, vera afar erfiða. Þjálfaramál liðsins skýrist á allra næstu dögum. 29.8.2023 12:01
Sandra opin í að snúa aftur í íslenska landsliðið: „Hætt við að hætta“ Sandra Sigurðardóttir, fyrrum landsliðsmarkvörður og leikjahæsti leikmaður sögunnar í efstu deild kvenna í fótbolta er klár í að snúa aftur í íslenska landsliðið. Hanskarnir eru komnir af hillunni. 28.8.2023 19:15
Heiðra minningu Kobe og reisa styttu NBA liðið Los Angeles Lakers mun heiðra minningu Kobe Bryant með því að reisa bronsstyttu af honum fyrir utan leikvang félagsins. 25.8.2023 16:00
Karabatic lætur gott heita eftir tímabilið Franska handboltagoðsögnin Nikola Karabatic leggur skóna á hilluna eftir þetta tímabil. Frá þessu greinir Karabatic í opnu bréfi til stuðningsmanna Paris Saint-Germain í dag. 25.8.2023 14:52
Ótrúlegur árekstur á leið í keppni á HM dró dilk á eftir sér Andrew Hudson, spretthlaupari frá Jamaíka, lenti heldur betur illa í því þegar að tvær skutlur, sem notaðar eru til þess að ferja keppendur á HM í frjálsum íþróttum frá upphitunarsvæði leikanna yfir á leikvanginn sjálfan, skullu saman. 25.8.2023 14:01
Gylfi Þór með munnlegt samkomulag við Lyngby Íslenski atvinnumaðurinn í knattspyrnu, Gylfi Þór Sigurðsson, hefur gert munnlegt samkomulag við danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby. 25.8.2023 13:05