Fullviss um að fyrrverandi eiginmaðurinn sé ekki faðir barnsins Kona hefur, fyrir hönd nýfædds sonar síns, stefnt fyrrverandi eiginmanni sínum sem hún segist fullviss um að sé ekki faðir sonarins. Konan krefst þess að viðurkennt verði fyrir dómi að maðurinn sé ekki faðirinn. 8.12.2023 13:00
Vara börn við hættulegum leik á Sauðá Sauðá á Sauðárkróki er hættuleg um þessar mundir og börn eru vöruð við að leika sér á henni. 7.12.2023 23:48
Unglingar í Reykjavík fá að sofa lengur Reykjavíkurborg hefur tekið þá ákvörðun að skóladagur unglinga muni byrja í fyrsta lagi klukkan 8:50 á morgnana. Breytingin mun taka gildi í grunnskólum borgarinnar frá og með haustinu 2024. 7.12.2023 23:06
Myndaveisla: Grindvíkingar áttu hjartnæma stund saman Börn frá Grindavík brostu úr að eyrum á aðventugleði sem fram fór í dag þegar íbúar komu margir saman í fyrsta sinn frá því að bærinn var rýmdur. 7.12.2023 22:47
Kartöfluummælin hjálpi lítið: „Þú getur rétt ímyndað þér hvernig fólk tekur þessu“ Arnar Hjálmsson, formaður Félags flugumferðarstjóra, gefur lítið fyrir ummæli Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, sem sagði að ef hún væri jólasveinninn þá myndi hún gefa flugumferðarstjórum kartöflu í skóinn. Hann segist ekki vita hver meðallaun flugumferðarstjóra séu og að hann láti hækkunina sem farið sé fram á liggja á samningsborðinu. 7.12.2023 20:49
Maður grunaður um manndráp ekki lengur í farbanni Maður á þrítugsaldri, sem er grunaður um að hafa orðið konu að bana á Selfossi í apríl á þessu ári, sætir ekki lengur farbanni. Farbannið rann út fyrir helgi og Héraðsdómur Suðurlands framlengdi það ekki. Lögreglan á Suðurlandi hefur kært ákvörðunina til Landsréttar. 7.12.2023 19:34
Segir gamlan vin valda sér vonbrigðum Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir gamlan vin sinn, Sigmar Guðmundsson þingmann Viðreisnar, valda sér vonbrigðum með málflutningi sínum. Báðir hafa þeir fjallað um Kveiksþátt sem var sýndur í Ríkissjónvarpinu í gær og varðaði íslensku krónuna. 7.12.2023 00:21
Segir mál drengjanna skera sig í hjartað Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra hefur kallað eftir gögnum um palestínsku drengina Sameer Omran, 12 ára, og Yazan Kawave, 14 ára, sem á að vísa úr landi. 6.12.2023 23:18
Verkfallið komi á „gríðarlega vondum tíma“ Flugfélögin Play og Icelandair skoða nú viðbrögð sín við fyrirhuguðu verkfalli flugumferðarstjóra á þriðjudags- og fimmtudagsmorgun í næstu viku. 6.12.2023 21:40
Segir nýja Bjarna gagnrýna gamla Bjarna Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi fjölmiðlamaður, segist ósammála Bjarna Benediktssyni, utanríkisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra, um Kveiksþátt sem var sýndur í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi. Bjarni deildi þeirri skoðun sinni í dag að þátturinn innihéldi áróður og væri „eiginlega hneyksli“, en Sigmar segir hins vegar þáttinn stórfínan og hið raunverulega hneyksli vera gagnrýni Bjarna. 6.12.2023 21:02