Fréttamaður

Ólafur Björn Sverrisson

Ólafur er fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Ásdís Rán á OnlyFans

Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir, gjarnan kölluð Ísdrottningin, hefur haslað sér völl á efnisveitunni OnlyFans. 

Kvöldfréttir Stöðvar 2

Í kvöldfréttum greinum við frá skýrslu sem segir viðbrögð starfsmanna sumarbúðanna í Reykjadal hafa verið ómarkviss, ámælisverð og alvarleg þegar níu ára stúka með fötlun greindi frá því að þroskaskaskertur starfsmaður hefði brotið á henni kynferðislega.

Dökkar hliðar mannkyns og kona sem liggur banaleguna

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarráðherra afhenti í dag Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta til tveggja höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum. Það eru þau Magnús Jochum Pálsson og Margrét Marteinsdóttir. Í umsögn segir að ljóðabók Magnúsar veki lesanda til umhugsunar um dökkar hliðar mannsins og fjallar skáldsaga Margrétar um 49 ára konu sem liggur banaleguna á elliheimili í Reykjavík.

„Setur fleiri parsam­bönd úr skorðum en fram­hjá­hald“

„Streita í fjármálum setur fleiri parsambönd úr skorðum heldur en framhjáhald,“ segir Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi. Hann segist oftast hitta pör sem hafi áhyggjur af fjármálum. Lykilatriði sé samskipti. 

María Sig­rún leikur í einni dýrustu mynd allra tíma

María Sigrún Hilmarsdóttir fer með hlutverk fréttaþular í nýrri Fast and the Furious-kvikmynd, Fast X. Hún segist lengi hafa dreymt um að leika í kvikmynd en labbaði út úr kvikmyndasalnum þegar um tuttugu mínútur voru búnar af myndinni.

Krefst þyngingar á þyngstu fíkni­efna­dómum sögunnar

Saksóknari krefst þess að dómar yfir sakborningum í saltdreifaramálinu svokallaða verði þyngdir. Tveir sakborningar hlutu tólf ára fangelsisdóm í málinu sem eru þyngstu dómar sem fallið hafa í í fíkniefnamáli hér á landi. 

Segir ákvörðunina alfarið hans eigin

„Eftir að hafa verið vakinn og sofinn yfir á þessu verkefni langar mig einfaldlega að breyta til,“ segir Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari sem lætur nú af embættinu. Tvö ár eru eftir af skipunartíma Aðalsteins en ákvörðunina segir hann alfarið hans eigin.

Raj Soni nýr framkvæmdastjóri Meniga

Fjártæknifyrirtækið Meniga hefur skipað Dheeraj (Raj) Soni sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins. Í tilkynningu segir að Soni hafi víðtæka reynslu af stjórnun vaxtarfyrirtækja og muni stýra Meniga í gegnum tímabil vaxtar og langtímaþróunar.

Sjá meira