Mikill viðbúnaður vegna elds í Ármúla Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna elds í Ármúla 5. 20.5.2023 13:40
Viðurkennir að hafa farið rangt að við veiðar Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, viðurkennir að betur hefði mátt standa að hvalveiðum þegar hvalur var eltur í tvær klukkustundir í myrkri og sex sprengiskutlum skotið á hann. 20.5.2023 11:15
Hættir sem formaður ef Samfylkingin kemst ekki í ríkisstjórn Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, ætlar að hætta sem formaður ef flokkur hennar kemst ekki í ríkisstjórn að loknum næstu kosningum. Hún útilokar ekki ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokki, en viðurkennir að samstarf með flokknum myndi reynast erfitt. 20.5.2023 10:29
Kanna hvort Rússum hafi tekist að skemma loftvarnarkerfi Bandaríkjamenn kanna nú mögulegar skemmdir Rússa á háþróuðu loftvarnarkerfi Úkraínumanna, sem þeir fengu að gjöf, bæði frá Bandaríkjamönnum og annað frá Hollendingum og Þjóðverjum. 16.5.2023 20:09
Einn látinn og 23 saknað eftir flóðhestaárás Eins árs drengur er látinn og 23 er saknað eftir að flóðhestur réðst á bát í Malaví í gær og hvolfdi honum. Björgunarsveitir leita að fólkinu en litlar líkur eru taldar á því að nokkur finnist á lífi. 16.5.2023 19:08
Á von á mörgum sólardögum í sumar Hitatölur fóru víða á landinu undir frostmark í nótt og sumarið ætlar að láta bíða eftir sér. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur samt sem áður litlar áhyggjur af sumrinu og býst við lítilli úrkomu og mörgum sólardögum. 16.5.2023 18:14
Þrennir þríburar fæddust um páskana Þrennir þríburar fæddust á fæðingardeild Landspítalans um páskana í ár. Tvö ár eru frá því að þríburar fæddust hér á landi. Frá árinu 2006 hafa átján þríburafæðingar orðið á Íslandi, að meðaltali ein á ári. 20.4.2023 22:36
Ógnvænlegar fréttir en koma ekki á óvart „Þetta eru augljóslega ógnvænlegar fréttir, en koma ekki sérstaklega á óvart,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra innt eftir viðbrögðum við fréttaflutningi norrænna miðla af hernaðaráætlun Rússa á Norðurlöndum. 20.4.2023 16:06
Ekið á gangandi vegfaranda í Grafarvogi Ekið var á gangandi vegfaranda í á Víkurvegi í Grafarvogi rétt fyrir klukkan eitt í dag. 20.4.2023 12:59
Rangfærslur allsráðandi í umræðu um umdeilt frumvarp Formaður Íslensk-evrópska verslunarráðsins segir umræðu um umdeilt frumvarp utanríkisráðherra um EES samninginn einkennast af rangfærslum. Einungis sé verið að bæta úr galla á innleiðingu samningsins, sem sé sá mikilvægasti sem gerður hefur verið í þágu íslensks atvinnulífs. 20.4.2023 12:37