Staðfestir niðrandi ummæli Trumps um hermenn John Kelly, fyrrverandi starfsmanna stjóri Hvíta húss Donalds Trump, gagnrýndi forsetann fyrrverandi harðlega í ummælum sem opinberuð voru í gær. Kelly staðfesti nokkur af umdeildum ummælum Trumps um særða og handsamaða hermenn. 3.10.2023 11:47
Senda fjölþjóðlegt herlið til að kveða niður óöldina í Haítí Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær að senda fjölþjóðlegt herlið, sem leitt verður af Kenía, til Haítí. Þar eiga mennirnir að reyna að binda enda á óöldina sem hrjáð hefur landið um árabil. Tæp tuttugu ár eru síðan friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna yfirgáfu Haítí. 3.10.2023 10:06
GameTíví: FC24 mót hjá strákunum Það er spennandi streymi í vændum hjá strákunum í GameTíví. Þar sem fótboltaleikurinn FC 24, sem áður kallaðist FIFA, er kominn út, ætla strákarnir að halda mót sín á milli. 2.10.2023 19:30
Skortur og álag á lögregluþjónum: „Einungis fávitar myndu ganga til liðs við lögregluna“ Gífurlegt álag er á lögregluþjónum í Rússlandi, sem má að miklu leyti rekja til fækkunar lögregluþjóna, þó mun fleiri lögregluþjónar séu í Rússlandi miðað við í Bandaríkjunum og Bretlandi. Fækkunin hefur komið niður á forvörnum þeirra gegn glæpum, leitt til spillingar og annarra vandræða. 1.10.2023 14:48
Segja heita síma Apple ekki skrifast á nýja hönnun Forsvarsmenn Apple segja það ekki nýrri hönnun iPhone 15 að kenna að símarnir eigi það til að hitna, heldur sé að mestu um hugbúnaðargalla að ræða. Til stendur að laga þennan galla í nýrri uppfærslu fyrir iOS 17, stýrikerfi Apple. 1.10.2023 12:15
Féll af svölum á fjórðu hæð Maðurinn sem féll fram af svölum í Vesturbænum í gær féll af fjórðu hæð. Talið er að um slys hafi verið að ræða en enginn vitni urðu að fallinu, heldur fannst maðurinn liggjandi í grasinu við húsið eftir að hann féll. 1.10.2023 11:17
Umdeildur fyrrverandi forsætisráðherra í góðri stöðu Flokkur umdeilds fyrrverandi forsætisráðherra Slóvakíu bar sigur úr býtum í þingkosningum gærdagsins og fékk nærri því fjórðung atkvæða. Smer-flokkurinn er leiddur af Robert Fico, sem þykir vinveittur yfirvöldum í Rússlandi og hefur heitið því að hætta öllum stuðningi við Úkraínu. 1.10.2023 10:44
Sprenging og skotbardagi í Ankara Maður sprengdi sig í loft við húsnæði innanríkisráðuneytis Tyrklands í Ankara í morgun og annar var felldur í skotbardaga við lögregluþjóna. Tveir lögregluþjónar særðust í átökunum en þingsetning er í Tyrklandi í dag. 1.10.2023 09:15
Hvasst á sunnanverðu landinu Búast má við hvassviðri á sunnanverðu landinu fram eftir degi. Skil nálgast landið úr suðaustri og snýst því í norðaustanátt í dag með kalda og stiningskalda víða og dálítilli vætu. Þó mun rofa til um landið suðvestanvert. 1.10.2023 08:36
Samþykktu bráðabirðgafjárlög á síðustu stundu Bandarískir þingmenn samþykktu á síðustu stundu í nótt nýtt fjárlagafrumvarp til bráðabirgða og komu þannig í veg fyrir lokun opinberra stofnanna. Sú lokun átti formlega að hefjast á miðnætti í nótt, að staðartíma, og hefur verið frestað um 45 daga. Fjárlögin nýju gætu kostað forseta fulltrúadeildarinnar embættið. 1.10.2023 08:05