Tesla kallar inn tvær milljónir bíla vegna galla í sjálfstýringu Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur innkallað tvær milljónir bíla eftir að eftirlitsaðilar framleiðandans í Bandaríkjunum uppgötvuðu galla í sjálfstýringarkerfi bílanna. 13.12.2023 23:59
Segir lægðina standa stutt yfir og spáir snjó um helgina Gular viðvaranir skella á í nótt og lægðir ganga yfir landið nú í aðdraganda jóla. Veðurfræðingur segir að óveðrið verði yfirstaðið við fótferðartíma í fyrramálið. Þá spáir hann norðanátt með kólnandi veðri um jólin. 13.12.2023 22:03
IKEA segir krónur hafa ráðið för en ekki pólitík Engin stjórnmálatengd sjónarmið lágu að baki viðskiptaslita IKEA við ísraelska sprotafyrirtækið Rapyd um greiðslumiðlun samkvæmt yfirlýsingu frá fyrirtækinu. 13.12.2023 21:47
Vildu ekki greiða atkvæði um Eurovision þátttöku Íslands Stjórnarmeðlimur RÚV kveðst hafa lagt fram tillögu að ályktun vegna Eurovision þess efnis að Ísland taki ekki þátt í keppninni taki Ísrael þátt, á fundi stjórnarinnar. Hann segir fundinn hafa hafnað því að taka tillöguna til atkvæða. Varaformaður stjórnar RÚV segir trúnað ríkja á fundum stjórnarinnar. 13.12.2023 20:18
Dularfulli Brasilíumaðurinn viðurkennir loksins að hann sé Rússi Maðurinn sem lögreglan í Noregi handtók í fyrra vegna gruns um að hann væri rússneskur njósnari og ofursti í rússnesku leyniþjónustunni, hefur nú loks viðurkennt að hann er Rússi. Fram til þessa hefur hann sagst vera brasilískur. 13.12.2023 19:43
Ikea hættir viðskiptum við Rapyd Húsgagnaverslunin IKEA er ekki lengur í viðskiptum við ísraelska sprotafyrirtækið Rapyd. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hefur IKEA nú fært viðskipti sín yfir til íslenska fjártæknifyrirtækisins Teya, áður SaltPay. 13.12.2023 18:52
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Mikil röskun verður á flugi þegar verkfall flugumferðarstjóra skellur aftur á nótt. Við ræðum málið í fréttatímanum okkar klukkan 18:30 við Sigurð Inga Jóhannesson innviðaráðherra sem vill að deiluaðilar leysi málið sem fyrst. Við tölum líka við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um áhrif verkfallsins í beinni útsendingu. 13.12.2023 17:58
Jeffrey Foskett úr The Beach Boys er látinn Jeffrey Foskett, langtímameðlimur og gítarleikari hljómsveitarinnar The Beach Boys, er látinn 67 ára að aldri. 13.12.2023 17:40
Ekkert spurst til Navalní og Þórhildur Sunna krefst upplýsinga Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata og aðalfulltrúi pólitískra fanga á Evrópuráðsþinginu hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hún krefur rússnesk yfirvöld um að upplýsa lögmenn Navalní, pólitísks andstæðings Pútín, um staðsetningu hans og leyfa þeim að hitta hann. 13.12.2023 00:16
Fjölga sérfræðingum hjá Veðurstofunni til umfangsmeiri vöktunar Atburðarásin í Grindavík í byrjun nóvember hefur gjörbreytt forsendum Veðurstofu Íslands í tengslum við vöktun á Reykjanesskaga samkvæmt tilkynningu frá veðurstofunni. Þörf sé á umfangsmeiri vöktun þegar kemur að eldgosavá. Fram kom á íbúafundi í dag að Grindvíkingar geta ekki flutt aftur heim fyrir áramót. 12.12.2023 23:05