Fimm leiðir til að kveikja neistann eftir framhjáhald Framhjáhald er með því versta sem getur komið fyrir ástarsambönd. Hvort sem um ræðir líkamlegt eða andlegt framhjáhald. Ef pör ákveða að leggja svikin á bakvið sig og bjarga sambandinu krefst það mikillar einbeitingar og skuldbindingar af hálfu beggja aðila. Á danska lífstílsefnum Alt.dk má finna fimm ráð til fólks í þessari stöðu. 7.3.2024 13:31
Danska demantadrottningin snúin aftur Í byrjun árs gaf danska demantadrottningin Katerina Pitzner sjálfri sér frí frá samfélagsmiðlum í 54 ára afmælisgjöf. Hún hefur nú ákveðið að logga sig aftur inn á Instagram eftir nauðsynlegt hlé með öðrum áherslum. Pitzner er ein vinsælasta samfélagsmiðlastjarna Danmerkur og keppast dönsku slúðurmiðlarnir við að flytja af henni fréttir. 6.3.2024 16:23
Með alls konar í bakpokanum eftir að hún varð móðir Sara Linneth, förðunarfræðingur og meistaranemi, segir að það hafi haft ýmsar áskoranir í för með sér að vera móðir, meðal annars á edrúlífið. Sara ræðir málin á einlægan hátt í hlaðvarpsþættinum Mömmulífið með þeim Ástrósu Trausta og Guðrúnu Sørtveit. 6.3.2024 13:50
Einföld og frískleg fermingarförðun Rakel María Hjaltadóttir förðunarfræðingur og ofurskvísa sýnir okkur hvernig má töfra fram einfalda og fallega förðun fyrir fermingardaginn án mikillar fyrirhafnar. 6.3.2024 09:01
Sjarmerandi eign í gamla Vesturbænum Við Ægisgötu í Vesturbæ Reykjavíkur má finna fallega og mikið endurnýjaða 94 fermetra íbúð á annarri hæð í steinsteyptu húsi frá árinu 1954. Ásett verð er 82,5 milljónir. 5.3.2024 17:10
Ómótstæðilegir espresso orkubitar Kristjana Steingrímsdóttir heilsukokkur deildi nýverið einfaldri uppskrift að ómótstæðilegum orkubitum með fylgjendum sínum á Instagram. Bitarnir eru dísætir og hollir sem gott er að grípa í til að svala sykurþörfinni með góðri samvisku. 5.3.2024 15:40
Fagnar stóru og sterku lærunum Katrín Edda Þorsteinsdóttir áhrifavaldur og verkfræðingur segist í sjokki yfir því að skoða myndir af sér frá því fyrir seinustu fitnesskeppnina hennar. Þar hafi lífið snúist um að verða „eins og blað.“ Markmiðið hafi verið að minnka lærin en í dag er Katrín hamingjusöm í Crossfit þar sem enginn spáir í stærð læranna, heldur styrk þeirra. 5.3.2024 10:56
Edda Falak á von á barni: „Loksins mamma“ Edda Falak baráttukona og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálfari í Mjölni, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið greinir frá tímamótunum í sameiginlegri færslu á Instagram. 4.3.2024 15:30
Íbúð Bergsteins í Kastljósinu til sölu Bergsteinn Sigurðsson, sjónvarpsmaður á RÚV, hefur sett íbúð sína við Drekavog í Reykjavík á sölu. Ásett verð fyrir eignina er 63,9 milljónir. 4.3.2024 14:30
Elísa Viðars orðin strákamamma Knattspyrnuparið Elísa Viðarsdóttir og Rasmus Christiansen eignuðust dreng 2. mars síðastliðinn. Elísa greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum í gær. 4.3.2024 14:16