„Það þýðir ekki að segja nemendum að þau megi ekki tala um málið“ Talskona Stígamóta segir skóla verða að bregðast rétt við kynferðisbrotamálum, svo nemendum líði ekki eins og þeir þurfi að taka málin í eigin hendur. Hún setur spurningamerki við tölvupóst sem skólameistari Fjölbrautarskólans á Suðurlandi sendi nemendum, þar sem hann bað þá að ræða ekki meint kynferðisbrot. 28.8.2022 12:06
„Ekki réttlætanlegt að þolandi geti mætt geranda sínum á ganginum í skólanum“ Forsvarsmenn nemendafélags Fjölbrautarskóla Suðurlands eru ósáttir við hvernig stjórnendur hafa tekið á meintu kynferðisbroti innan veggja skólans. Skólameistarinn hefur beðið nemendur að vanda sig í umræðum um málið. 27.8.2022 19:12
Tekur gagnrýni Reykjanesbæjar til sín og segir úrbætur á lokametrunum Félagsmálaráðherra segist taka til sín gagnrýni meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar um stöðu mála í móttöku flóttafólks og fólks í leit að vernd. Vinna við að fjölga sveitarfélögum sem taki á móti fólki sé á lokametrunum. Það muni létta mjög undir með þeim fáu sveitarfélögum sem hingað til hafi gert það. 27.8.2022 13:00
Hafa tilkynnt þrjú möguleg mansalsmál til lögreglu í ágúst Verkefnastjóri hjá ASÍ kallar eftir harðari viðbrögðum við launaþjófnaði eftir að eigandi tveggja veitingastaða í Reykjavík var sakaður um stórfelld svik við starfsfólk. Málum sem þessum fari fjölgandi en bara í þessum mánuði hefur ASÍ tilkynnt þrjú mál til mansalsteymis lögreglu. 26.8.2022 19:29
Taka þurfi á launaþjófnaði af meiri festu en hingað til Félagsmálaráðherra segir unnið að því að setja skýrari lagaramma um launaþjófnað, en samstaða hafi ekki náðst um aðgerðir meðal aðila vinnumarkaðarins. Grunur er um stórfelldan launaþjófnað á tveimur veitingastöðum í Reykjavík, í eigu sömu aðila. 26.8.2022 13:31
Vilja fá fleiri sveitarfélög að borðinu svo hægt sé að sinna fólki vel Meirihluti sveitarstjórnar Reykjanesbæjar er ósáttur við þrýsting ríkisins á sveitarfélagið um að taka á móti fleira flóttafólki og fólki í leit að vernd, án þess að fjármagn fylgi. Að sama skapi gagnrýnir meirihlutinn að ríkið hafi tekið á leigu húsnæði fyrir yfir fjögur hundruð manns á Ásbrú, án þess að ræða við sveitarfélagið. 25.8.2022 06:31
Forsetinn fyrstur farþega í rafmagnsflugvél Blað var brotið í íslenskri flugsögu í gær með fyrsta farþegaflugi rafmagnsflugvélar hér á landi. Forseti Íslands og forsætisráðherra voru fyrstu farþegar vélarinnar og segja flugið marka vatnaskil í vegferð Íslands í átt að hreinni orku í loftsamgöngum. 24.8.2022 06:30
„Allt við þetta mál er fyrir neðan allar hellur“ Fyrrverandi formaður Dýraverndarsambands Íslands segir fyrir neðan allar hellur að hundur á Siglufirði hafi verið aflífaður innan við tveimur tímum eftir að hann var tekinn frá fjölskyldu sinni. Reglur sveitarfélaga um hvernig haga eigi gæludýramálum séu ekki samræmdar, sem sé miður. 23.8.2022 13:29
Mikilvægt að taktur náist fyrir komandi kjarasamninga Formaður Bandalags háskólamanna segir mikilvægt að taktur náist innan Alþýðusambands Íslands fyrir komandi kjaraviðræður. Þær setji öðrum aðilum verkalýðshreyfingarinnar ramma. Náist sá taktur ekki gæti opinberi markaðurinn þurft að taka af skarið. 14.8.2022 22:14
Lítið hægt að gera ef „menn hverfa í hraunið“ Það er nánast ógjörningur fyrir viðbragðsaðila við gosstöðvarnar í Meradölum að koma fólki til bjargar, ef það lendir í sjálfheldu úti á sjálfu hrauninu. Myndband sem sýnir ferðamenn hætta sér ískyggilega nálægt gígunum hefur vakið athygli. 14.8.2022 19:16