Faldi metamfetamín í kleinuhring Landamæralögreglan í Bæjaralandi fann metamfetamín í kleinuhring manns sem hún stöðvaði við landamæraeftirlit. Eiturlyfin voru falin í miðju kleinuhringsins, þar sem sultan er alla jafna. 31.10.2022 23:01
„Þetta vatt heldur betur upp á sig“ Hauskúpur og skrýtið munstur á auglýsingaskiltum í höfuðborginni vöktu mikla athygli borgarbúa í morgun. Útlit var fyrir að tölvuþrjótar hefðu átt sök að máli en í ljós kom að um auglýsingaherferð TM var að ræða. 31.10.2022 22:21
Kosið um miklu meira en bara formann Sjálfstæðisflokksins Stjórnarþingmenn telja ólíklegt að hægt verði að halda stjórnarsamstarfinu áfram verði Guðlaugur Þór kjörinn nýr formaður Sjálfstæðisflokksins næstu helgi. Stjórnmálaskýrandi segir formannsslaginn hreinlega snúast um hvort blása eigi til þingkosninga í ár. 31.10.2022 21:40
Meira þurfi svo að náttúruvársérfræðingar fari í viðbragðsstöðu Náttúruvársérfræðingur segir að meira þurfi til að koma svo að sérfræðingar í jarðhræringum fari í viðbragðsstöðum. Skjálftavirkni í Bárðarbungu sé eðlileg enda hafi stærri skjálftar mælst reglulega í öskjunni síðustu ár. 31.10.2022 20:19
Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu í símtali við Selenskíj Joe Biden Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu þegar hann ræddi við Vólódímír Selenskíj forseta Úkraínu fyrr á árinu. Selenskíj á að hafa beðið Biden um frekari fjárstuðning og er Biden sagður hafa orðið pirraður. 31.10.2022 19:33
Taylor Swift skráir sig í sögubækurnar Lög söngkonunnar Taylor Swift skipa öll tíu efstu sæti Billboard listans í Bandaríkjunum. Hún er fyrsti tónlistarmaðurinn í 64 ára sögu listans sem nær þessum árangri. 31.10.2022 18:37
Stjórnendum fækkað á Landspítalanum Tíu stöðugildi forstöðumanna falla niður samkvæmt nýju skipuriti á Landspítalanum. Markmið skipulagsbreytinganna er að styrkja klíníska starfsemi og að hagræða í rekstri. 31.10.2022 18:04
Guðlaugur segist ekki hafa hótað Bjarna Guðlaugur Þór Þórðarson orkumálaráðherra segir allsendis ósatt að hann hafi verið reiðubúinn að falla frá áformum sínum um formannsframboð gegn því að Bjarni myndi eftirláta honum að taka við sem fjármála- og efnahagsráðherra. 31.10.2022 17:19
Setti bókstafinn Z á bílinn og fékk hálfa milljón í sekt Manni í Þýskalandi hefur verið gert að greiða fjögur þúsund evrur, eða rúmar 570 þúsund krónur, í sekt fyrir að hafa sett bókstafinn Z á bílinn sinn. Merkið hefur verið notað til marks um stuðning við innrás Rússa í Úkraínu. Maðurinn hefur áfrýjað. 25.10.2022 23:28
„Ég myndi aldrei láta það uppi“ Ljóð sem fylgt hafa Vigdísi Finnbogadóttur í gegnum lífið voru gefin út á bók í dag. Hún ber titilinn Ljóðin hennar Vigdísar en fyrrverandi forsetinn valdi öll ljóðin sem birtast í henni. Sjálf segist hún aldrei ætla að láta það uppi hvort hún eigi ljóð eftir sjálfa sig, falin í einhverri skúffunni. 25.10.2022 22:41