Stj.mál

Fréttamynd

Tólf milljónir til viðbótar vegna hamfara í Pakistan

Íslenska ríkið hefur ákveðið að auka framlag sitt til hjálparstarfs vegna jarðskjálftans í Pakistan í október síðastliðnum. Áætlað er að 12 milljónum verði varið til fjármögnunar á flutningi Atlantshafsbandalagsins á hjálpargögnum til nauðstaddra í norðurhluta landsins.

Innlent
Fréttamynd

Góð en hljóðlát þingmál

Alþingi lauk störfum síðastliðið föstudagskvöld eftir heldur stranga viku og langa þingfundi. Frumvarp þingmanna allra flokka um breytingar á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatt lætur lítið yfir sér en það var afgreitt sem lög frá Alþingi fyrir helgi. Í huga margra þingmanna er þetta eitt mikilsverðasta afrek þingsins.

Innlent
Fréttamynd

Dagur genginn í Samfylkinguna

Dagur B. Eggertsson, hefur skráð sig í Samfylkinguna samkvæmt heimildum fréttastofu. Í samtali við fréttastofuna rétt í þessu vildi Dagur sjálfur þó ekki staðfesta þetta, en neitaði því ekki heldur.

Innlent
Fréttamynd

Trúnaðarbrestur milli stjórnvalda og bótaþega

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar segir að trúnaðarbrestur hafi orðið milli stjórnvalda, aldraðra og öryrkja. Umræður um öryrkjaskýrslu Stefáns Ólafssonar endurspeglaði það. Hún vildi vita á Alþingi í dag hvort forsætisráðherra vildi beita sér fyrir fimm ára áætlun í samvinnu við fulltrúa lífeyrisþega í málefnum þessara hópa.

Innlent
Fréttamynd

Kristinn fær engin svör

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks, fær ekkert svar við fyrirspurn sinni um íbúðalán banka og sparisjóða. Hann spurði meðal annars hversu mikið hver banki og sparisjóður hefði lánað gegn veði í húsnæði, hversu margir væru í viðskiptum hjá hverjum bankanna í sig og á hvaða kjörum þeir væru.

Innlent
Fréttamynd

Senda Thatcher hlýjar kveðjur

Fjölmargir hafa sent Margréti Thatcher hlýjar kveðjur á sjúkrahúsið þar sem hún var lögð inn í gær. Járnfrúin gamla virðist ætla að hrista af sér þessi veikindi eins og svo margt annað.

Erlent
Fréttamynd

Litlar efndir á rúmum átta árum

Hálfu níunda ári eftir að Alþingi samþykkti að efla bæri rannsóknir og sjómælingar innan 200 sjómílna efnahagslögsögunnar er enn ekki búið að veita krónu til verkefnisins.

Innlent
Fréttamynd

Eldur kom upp á Alþingi

Eldur kom upp í aðalrafmagnstöflu Alþingishússins á níunda tímanum í morgun en starfsmönnum tókst með snarræði að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom á vettvang.

Innlent
Fréttamynd

Tvö keppa um efsta sætið

Sjö hafa tilkynnt framboð í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á Akureyri en framboðsfrestur rennur út eftir viku. Forvalið sjálft fer svo fram laugardaginn 21. janúar. Tvö hafa gefið kost á sér í fyrsta sæti, þau Baldvin H. Sigurðsson og Valgerður H. Bjarnadóttir.

Innlent
Fréttamynd

Yfir 400 í mjög brýnni þörf

402 eldri borgarar eru í mjög brýnni þörf eftir dvöl á hjúkrunarheimili og 53 í brýnni þörf. Þetta kemur fram í svari Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingar.

Innlent
Fréttamynd

Kostnaður orðinn 200 milljónir

Framboð Íslands við framboð til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna er kominn í 200 milljónir króna og á eftir að tvöfaldast áður en yfir lýkur að því er fram kemur í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns Frjálslynda flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Prófkjör hjá sjálfstæðismönnum á Akureyri í febrúar

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri ákvað á fundi sínum í kvöld að efna til prófkjörs vegna vals á framboðslista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Prófkjörið verður haldið 11. febrúar næstkomandi. Frestur til að tilkynna þátttöku rennur út 16. janúar.

Innlent
Fréttamynd

Menntamálaráðuneytið snuprar Félag framhaldsskólakennara

Forysta Félags framhaldsskólakennara þarf að læra að fara rétt með staðreyndir. Einungis með því móti þjónar hún hagsmunum umbjóðenda sinna og skólasamfélagsins alls. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið sendi frá sér fyrir stundu í tilefni ályktunar framhaldsskólakennara frá því í fyrradag.

Innlent
Fréttamynd

Fræðsla um kynferðisofbeldi gegn börnum rædd á Alþingi

Fræðsla um kynferðisofbeldi gegn börnum í Kennaraháskóla Íslands er mjög ábótavant, sagði Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar, á Alþingi í dag. Menntamálaráðherra svaraði því til að nú þegar fái allir nemendur Kennaraháskólans víðtæka kennslu hvað þetta varðar, bæði í kjarna- og valnámskeiðum.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið borgar sveitarfélögunum

Tekjur sveitarfélaganna aukast um 200 milljónir króna þegar ríkið fer í fyrsta sinn að greiða fasteignagjöld af húsnæði í sinni eigu. Ríkisvaldið hefur hingað til ekki þurft að greiða sveitarfélögum fasteignagjöld af eignum sínum. Þetta breytist hins vegar um áramót vegna samkomulags sveitarfélaganna og ríkisins um tekjustofna sveitarfélaga.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin með stefnu gegn landsbyggðinni?

Tillaga um að veita fé til Byggðastofnunar var felld á Alþingi fyrir stundu. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sagði það ótrúlegt að ríkisstjórnin ætli að ljúka þingstörfum fyrir jól án þess að bæta eiginfjár stöðu stofnunarinnar. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, gagnrýndi einnig ríkisstjórnina fyrir að aðstoða Byggðastofnun ekki til að rétta af fjárhaginn og sagði stjórnina reka stefnu gegn landsbyggðinni.

Innlent
Fréttamynd

Launaskriðið er hjá stjórnendum

Launaskriðið er hjá stjórnendum fyrirtækja en ekki almennum launþegum segir borgarstjóri. Laun hundrað stjórnenda hækkuðu um hálfan milljarð króna í fyrra en samningur borgarinnar við fimm þúsund starfsmenn sína skilar þeim samanlagt einum og hálfum milljarði í launahækkun á næsta ári.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðismenn á Ísafirði halda prófkjör í febrúar

Sjálfstæðisfélögin í Ísafjarðarbæ hafa ákveðið að halda prófkjör vegna sveitarstjórnarkosninga á komandi vori 11. febrúar. Þetta kemur fram á vef héraðsfréttablaðsins Bæjarins besta. Búið er að semja reglur vegna prófkjörsins, en framboðsfrestur rennur út 21. janúar.

Innlent
Fréttamynd

Vilja úttekt á símanotkun Ísafjarðarbæjar

Atvinnumálanefnd Ísafjarðarbæjar hefur lagt til að gerð verði úttekt á símanotkun sveitarfélagsins og að á grundvelli hennar verði kannað verð og tilhögun á símaþjónustu með það að leiðarljósi að lækka kostnað sveitarfélagsins. Þetta kemur fram á fréttavef Bæjarins besta á Ísafirði.

Innlent
Fréttamynd

Stefna á framboð í sex sveitarfélögum

Frjálslyndir stefna á framboð í minnst sex sveitarfélögum næsta vor. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum buðu þeir fram lista í þremur sveitarfélögum og komu manni í bæjar- eða borgarstjórn í tveimur þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Sterkur ríkissjóður eða lök hagstjórn

Gert er ráð fyrir nítján milljarða króna afgangi á ríkissjóði í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem verður að lögum í dag. Stjórnarliða og stjórnarandstæðinga greinir þó á um hvort þau séu til marks um sterka stöðu ríkissjóðs eða að ekki sé tekið á óróa í efnahagslífinu.

Innlent
Fréttamynd

Maraþonumræða um fjárhagsáætlun í gær

Maraþonumræðu um fjárhagsáætlun borgarinnar lauk ekki fyrr en undir miðnætti en hún hófst klukkan tvö í gær. Þar kynnti R-listinn meðal annars áform um að flýta næsta skrefi í átt að gjaldfrjálsum leikskóla.

Innlent
Fréttamynd

Menntamálaráðherra harðlega gagnrýndur

Þriðja umræða um fjárlögin fór fram á Alþingi í dag. Fjárlagafrumvarpið hefur ekki tekið breytingum frá annarri umræðu en minnihlutinn hefur þó lagt til fjölmargar breytingatillögur. Menntamálaráðherra var harðlega gagnrýndur við upphaf þingfundar í dag fyrir að hafa tjáð sig í fjölmiðlum um nýtt frumvarp um Ríkisútvarpið, áður en því var dreift í þinginu.

Innlent
Fréttamynd

Aðstandendur samkynhneigðra skora á Alþingi

FAS, Samtök foreldra og aðstandenda samkynhneigðra, afhentu forseta Alþingis áskorun í dag þar sem skorað er á þingið að breyta hjúskaparlögum nr. 31/1993 á þann veg að þau þjóni bæði gagnkynhneigðu og samkynhneigðu fólki.

Innlent
Fréttamynd

Varast ber að hagga við grundvallarþáttum ÖSE

Varast ber að hagga við grundvallarþáttum sem ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, byggist á og þá einkum sjálfstæði hennar á sviði mannréttindamála. Þetta sagði Geir H. Haarde utanríkisráðherra í ræðu sinni á fundi utanríkisráðherra aðildarríkja ÖSE í Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, í dag.

Innlent
Fréttamynd

Leikskólagjöld lækka um áramót

Leikskólagjöld fyrir áttastunda dag lækka um fimm þúsund krónur á mánuði í Reykjavík frá næstu áramótum og niðurgreiðsla á þjónustu dagforeldra verður aukin.

Innlent
Fréttamynd

Menntamálaráðherra efins um framhaldið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, sagði á Alþingi í morgun, að samræmd próf í núverandi mynd, í framhaldsskólum heyri líklega sögunni til, hún var þó ekki reiðubúin að slá þau af fyrr en að höfðu samráði við fagaðila.

Innlent
Fréttamynd

Ráðherra gerir alvarlegar athugasemdir við öryrkjaskýrslu

Heilbrigðisráðherra mun í dag gera alvarlegar athugasemdir við skýrslu Stefáns Ólafssonar prófessors um hag öryrkja á Íslandi í samanburði við hag öryrkja annars staðar á Norðurlöndum. Stefán hefur nú þegar gert lítið úr athugasemdum forsætisráðherra, sem sagði að niðurstöður Stefáns væru rangar í mörgum meginatriðum.

Innlent