Lífið

Lítt reyndir nemar tóku upp myndband

Garðar Örn Arnarson, Egill Antonsson og Erlingur Jack Guðmundsson, tóku upp myndband fyrir Klassart, þrátt fyrir litla reynslu. 
Mynd/Hilmar bragi
Garðar Örn Arnarson, Egill Antonsson og Erlingur Jack Guðmundsson, tóku upp myndband fyrir Klassart, þrátt fyrir litla reynslu. Mynd/Hilmar bragi
„Þetta gekk ótrúlega vel og tók enga stund," segir Garðar Örn Arnarson, 22 ára nemi við Kvikmyndaskóla Íslands.

Garðar og félagi hans, Erlingur Jack Guðmundsson, fengu það verðuga verkefni að taka upp tónlistarmyndband við lagið „Þangað til það tekst", sem hljómsveitin Klassart sendi nýlega frá sér.

Garðar og Erlingur eru á annarri önn sinni í Kvikmyndaskólanum og því verður það að teljast vel gert hjá strákunum að hafa tekið upp heilt tónlistarmyndband, þrátt fyrir litla reynslu.

„Ég var með hljómsveitinni á Akureyri og þau spurðu hvort ég gæti tekið upp myndband fyrir sig," segir Garðar. „Við byrjuðum að taka upp á laugardagsmorgni klukkan sex og vorum búnir rétt eftir hádegi," segir Garðar, en tökurnar fóru fram á Paddy's í Keflavík. „Við þurftum að redda öllu, nema náttúrlega hljómsveitinni."

Erlingur skrifaði handritið að myndbandinu og Garðar sá um framleiðslu, en báðir sáu þeir um leikstjórn. Myndbandið verður frumsýnt í byrjun desember en lagið er þegar farið í spilun og situr í sjötta sæti á vinsældalista Rásar tvö. „Lagið fjallar um ást, sem var smá áskorun fyrir okkur strákana. En þetta gekk upp og kemur ótrúlega vel út," segir Garðar, en þeir notuðu meðal annars 400 sprittkerti við gerðina á myndbandinu.

Garðar segir kennarana í Kvikmyndaskólanum vita af myndbandinu en að það komi náminu ekkert við. „Við verðum að sanna okkur upp á nýtt í skólanum, en það er fínt að fá reynsluna," segir Garðar.

Hljómsveitin Klassart ætti ekki að vera öllum ókunn, en lagið „Gamli grafreiturinn" fékk mikla spilun á útvarpsrásum landsins í haust. - ka





Fleiri fréttir

Sjá meira


×