Enski boltinn

Sá dýrasti minnti á sig | Sjáðu markið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Southampton vann 1-0 sigur á Middlesbrough á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Sofiane Boufal skoraði eina mark leiksins á 53. mínútu eftir sendingu frá James Ward-Prowse.

Þetta var fyrsta deildarmark Marokkómannsins fyrir Southampton en hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins.

Dýrlingarnir eru í 10. sæti deildarinnar með 20 stig.

Middlesbrough er hins vegar komið niður í 16. sætið. Boro er með 15 stig, þremur stigum frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×