De Gea tryggði United toppsætið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. október 2017 13:15 Spánverjinn de Gea er talinn einn af betri markvörðum heims. Vísir/Getty Manchester United fór á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir markalaust jafntefli gegn Liverpool á Anfield í dag. David de Gea varði meistaralega frá Joel Matip í fyrri hálfleik og Emre Can fór illa með dauðafæri, en Liverpool stjórnaði leiknum í seinni hálfleik. Þetta er í fyrsta skipti í sögu þessara liða sem að leikir liðanna á Anfield fara 0-0 tvö ár í röð. Manchester United hefur enn ekki tapað leik í úrvalsdeildinni á tímabilinu en þetta var fjórða jafntefli Liverpool í átta leikjum. Enski boltinn