Sautjándi sigur City í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. desember 2017 16:45 Sergio Agüero skoraði tvö mörk. vísir/getty Manchester City vann sinn sautjánda leik í röð þegar liðið bar sigurorð af Bournemouth, 4-0, á Etihad í 19. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Með sigrinum náði City 14 stiga forskoti á toppi deildarinnar. Manchester United getur minnkað forskot City aftur niður í 11 stig með sigri á Leicester City í kvöld. Sergio Agüero kom City yfir með skalla eftir sendingu frá Fernandinho á 27. mínútu. Þetta var hundraðasta mark Agüeros á Etihad. Eftir átta mínútna leik í seinni hálfleik lagði Agüero upp mark fyrir Raheem Sterling. Argentínumaðurinn skoraði sitt annað mark á 79. mínútu og varamaðurinn Danilo negldi svo síðasta naglann í kistu Bournemouth þegar hann skoraði fjórða mark City fimm mínútum fyrir leikslok. Enski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Íslenski boltinn