Veiði

Góð skot á Tannastaðatanga

Það er víðar en í stóru ánum sem menn setja í laxa þessa dagana. Sindri Már Pálsson gerði ágætis túr í Sogið, nánar tiltekið á Tannastaðatanga, um daginn þegar hann og afi hans lönduðu tveimur flottum löxum og misstu einhverja. Núna þegar Sogið er aðeins seinna í gang en í venjulegu ári eru menn í góðri laxavon á þessu svæði og þeir sem lenda í göngum geta gert góða veiði.

Veiði

126 laxa dagur í gær í Eystri Rangá

Í gær veiddust 126 laxar í Eystri Rangá og er áin þá komin í 955 laxa. Núna eru kröftugar göngur í ánna og má reikna með að hún verði fljót upp í 2000 laxa þegar flestir dagarnir framundan ættu að skila yfir 100 löxum.

Veiði

24 laxar á einum degi í Svalbarðsá

Ótrúlegur gangur er í Svalbarðsá þessa dagana en hollið sem byrjaði veiðar í gær er komið í 32 laxa eftir eina og hálfa vakt og þar af veiddust 24 laxar í dag. Vert er að taka fram að í hópnum er ungir og efnilegir fluguveiðimenn sem eiga bróðurpartinn af aflanum. Meðfylgjandi myndir eru af ungum veiðimönnum sem eru í skýjunum með árangurinn eftir fyrsta einn og hálfa daginn.

Veiði

"Veðurguðir greiða gamla skuld"

Ástþór Jóhannsson leigutaki og staðarhaldari við Straumfjarðará hefur þann skemmtilega sið að senda okkur ca tvær skýrslur á hverju sumri þar sem hann tekur saman gang mála. Að þessu sinni ríkir mikil gleði í pistlinum!

Veiði

Veiðitölur úr Andakílsá

Nú þegar að um þriðjungur veiðitímans er liðinn í Andakílsá hafa veiðst rúmlega 70 laxar. Heita má að þetta séu eðlilegar veiðitölur úr ánni.

Veiði

1.715 laxar komnir úr Norðurá

Mjög góð veiði hefur verið í Norðurá í Borgarfirði síðari hluta júlímánaðar og hafa hollin verið að fá 100-150 laxa á þremur dögum. Enn er lax að ganga.

Veiði

60-80 laxar á dag úr Eystri Rangá

Eystri Rangá hefur verið að skila 60-80 löxum á land á dag þrátt fyrir að áin sé stundum lituð hluta úr degi. Ef áin væri hrein allann daginn væru 100 + laxa dagarnir orðnir margir því mikið af laxi hefur verið að ganga síðustu daga.

Veiði

63 laxar á eina stöng í Grímsá

Veiði hefur glæðst til muna í Borgarfjarðaránum eftir vætutíð að undanförnu og er Grímsá þar engin undantekning. Góð veiði hefur verið í ánni að undanförnu en fáir hafa sennilega gert betur en bræðurnir Eggert og Þórir Halldórssynir frá Stykkishólmi sem fengu 63 laxa á ,,rúmlega“ eina stöng dagana 23. til 26. júlí sl. Þeir bræður veiða víða en Grímsáin er í sérstöku uppáhaldi enda hefur hún reynst þeim gjöful í áranna rás.

Veiði

54 laxar komnir úr Andakílsá

Holl sem lauk veiðum þann 28 júlí fékk sjö laxa á tveimur dögum og þar af voru sex laxar lúsugir. Þessir laxar komu úr Nátthagahyl, Efri Foss og nýjum veiðistað. Laxar sáust varla á öðrum stöðum í ánni.

Veiði

Frábær skilyrði og góð veiði í Kjósinni. Mikið af laxi í Langá

Félagarnir Sævar Haukdal og Rögnvaldur Jónsson voru í síðasta holli í Laxá í Kjós og enduðu með 21 lax á stöngina. Skilyrðin í ánni voru að þeirra sögn frábær. Áin í góðu vatni og fiskur að ganga af krafti, en sérstaklega var mikið af laxi á frísvæðinu frá Káranesfljóti og upp fyrir Hurðarbakshyl. Efsta svæðið hefur verið rólegast en er þó að koma hægt og rólega inn núna þegar fiskurinn dreifir sér um ánna.

Veiði

300 laxa vika í Selá

Veiðin í Selá heldur áfram að vera eins og hún hefur verið frá opnun, alveg ótrúlega góð! Síðasta vika gaf 300 laxa sem er alveg ótrúleg tala miðað við það sem er að gerast í ánum í kring og í raun á landinu öllu. Áin var ekki sein til eins og víða og tveggja ára laxinn er ennþá rúmlega helmingur aflans.

Veiði

9 kg lax úr Eystri Rangá í morgun

Eystri Rangá var í 59 löxum í gærdag og hefur náð að hreinsa sig síðan í byrjun vikunar. Í morgun var búið að skrá 25 laxa í bók og veiðimenn en eftir að skila sér niðri veiðihús. Það má einnig bæta við að 9kg lax veiddist í morgun og er það stærsti lax sumarsins hingað til í Eystri en við fáum því miður ekki mynd af drekanum fyrr en í kvöld eða á morgun.

Veiði

Góðir kostir í veiðileyfum um helgina

Núna þegar veðurspá helgarinnar liggur fyrir fara margir að hugsa um hvert þeir eigi að fara og veiða. Það eru margir spennandi kostir í boði og það þarf ekki að kosta mikið. Við tókum saman nokkra veiðileyfasala og skoðunum hvaða spennandi kostir eru í boði um helgina, og þá sér í lagi það sem kostar ekki mikið

Veiði

Klaus Frimor bætir við flugukastnámskeiðum

Klaus Frimor bætir við nokkrum flugukastnámskeiðum á Rauðavatni í ágúst. Það komust færri að en vildu á námskeiðin í vor og nú bætir hann við einhendunámskeiðum 18 og 20 ágúst og tvíhendunámskeiði 19 ágúst.

Veiði

80 laxa dagur úr Ytri Rangá

Ytri Rangá og vesturbakki Hólsár voru í 80 löxum í gærdag þrátt fyrir leiðindarok seinnipart dags. Matti veiðivörður sagði okkur að svæði sjö væri komið í gang ásamt því að Gullfossbreiðan á svæði tíu er alltaf að gefa meira og meira.

Veiði

Veiðidónar á ferð í Blöndu

Á morgunvaktinni á svæði 1 í Blöndu veiddist lax í Damminum með þennan ófögnuð kræktan í kviðinn. Ekki leikur vafi á því að veiðiþjófar hafa verið á ferðinni þarna í nótt sem leið og notað þetta agn. Veiðiverði hefur að sjálfsögðu verið gert viðvart og má búast við aukinni veiðivörslu í framhaldi af þessu.

Veiði

Innsend frétt úr Korpunni

Það hefur verið fínn gangur í Korpunni í sumar, í gær miðvikudaginn 17. júlí voru komnir á land 110 laxar á land og 12 sjóbirtingar. Það eru ennþá stórar torfur af laxi sem dólar um í sjónum, hnusar af ósnum og bíður eftir réttum aðstæðum til þess að renna sér upp í ánna, það verður virkilega gaman að sjá hvað gerist núna þegar bleyta er í kortunum enda var farið að örla á vatnsleysi og ekki er áin vatnsmikil fyrir.

Veiði

Topp 10 listinn yfir aflahæstu árnar

Þá eru komnar nýjar tölur frá Landsambandi veiðifélaga og Norðurá heldur sínu fyrsta sæti. Þess ber að geta fyrir þá sem eru að rýna í tölurnar í fyrsta skipti að það er ekki endilega heildartalan sem skiptir máli heldur hversu margir laxar það eru sem koma á stöngina.

Veiði

Ágæt bleikjuveiði í Litluá

Ágæt bleikjuveiði hefur verið í Litlá í sumar í bland við urriðann. Eru þær margar vænar og algeng stærð 45 til 50 sm. Einnig hafa ágætir urriðar komið á land og veiddist um daginn 71 sm urriði sem áætlaður var um 11 pund.

Veiði

Enn einn stórlaxinn úr Víðidalnum

Þrátt fyrir að veiðin sé nokkuð róleg enn sem komið er í Víðidalnum eru þar þó nokkrir drekar á sveimi. Þessi sem hér sést á mynd er 100 cm langur og tók hann Green Brahan no. 14 í Harðeyrarstreng. Veiðimaðurinn er Konstantin Kravchenko og óskum við honum til lukku með þennan fallega fisk.

Veiði

Lifnar loksins yfir Stóru Lax-á

Við heyrðum góðar fréttir úr Stóru Laxá sv. I og II. Í gær komu sjö laxar á land og veiðimenn misstu annað eins. Laxinn var að taka á öllu svæðinu. Eru þetta góðar fréttir fyrir Stóru Laxá sem hefur verið eins og svo margar aðrar ár seinni í gang en undanfarin ár.

Veiði

Guð er í nótt á Þingvöllum

Atli Bergmann hefur í vor og sumar farið sannkölluðum hamförum á veiðislóð. Bleikja og urriði í hundruða tali auk vænna sjóbirtinga og stórlaxa eru á afrekaskránni. Atli fékk lax lífs síns í Svartá um daginn.

Veiði

Blanda komin yfir 1.100 laxa

Þó að laxveiðin í Blöndu hafi ekki verið eins mikil í sumar og á tveimur síðustu árum hefur veiðin verið þokkaleg. Samkvæmt upplýsingum frá Lax-á hafa veiðst um 1.100 laxar.

Veiði

Innsend frétt frá veiðihóp sem var koma úr Veiðivötnum

"Við félagarnir vorum að veiðum í Veiðivötnum á dögunum og veiddist bara ágætlega þrátt fyrir að lenda í leiðindar veðri í tvo hálfa daga. Þrátt fyrir það er fiskurinn enn til staðar í vatninu þannig að það er um að gera að láta sig hafa það að reyna.

Veiði