Fastir pennar

Skaðlegt ­óvissuástand­

Um alllanga hríð hefur dökkt útlit í efnahagslífinu kallað eftir styrkri og samhentri ríkisstjórn sem væri tilbúin að taka frumkvæði og ganga til verka af festu og einurð. Sú stjórn sem nú er við völd virðist hreint ekki búa yfir slíkri staðfestu.

Fastir pennar

Þreyttir þurfa hvíld

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn mynduðu þriðju ríkisstjórnina í röð vorið 2003, birtu þeir nýja stefnuyfirlýsingu. Það tíðkast. Yfirlýsingin bar þreytulegan svip og vakti ekki mikla athygli. Nú nálgast örlagastundin: ríkisstjórninni er vart hugað líf til hausts, þótt hún kunni að sitja til vors.

Fastir pennar

Alltaf kaus ég Framsókn

Mínar fyrstu kosningar voru árið 1971. Tólf ára gamall bar ég út áróður fyrir Allaballa og vonaði innilega að gömlu sixtís-karlarnir, sem heilsuðu með því að taka ofan hattinn og þéruðu hvorir aðra, töpuðu sem mest. Það varð úr. Vinstrimenn unnu loks góðan sigur og komust í ríkisstjórn. Hinsvegar gleymdi barnshugurinn að reikna með Framsókn.

Fastir pennar

Formaður staðfestunnar kveður

Það eru mikil pólitísk tíðindi þegar Halldór Ásgrímsson tekur samtímis ákvörðun um að láta af embætti forsætisráðherra og hverfa úr hlutverki formanns Framsóknarflokksins. Engum getur dulist að sú ákvörðun tengist umbrotum í flokknum sjálfum. Stjórnarsamstarfið gaf í sjálfu sér ekki efni til slíkrar ákvörðunar.

Fastir pennar

Ríki og ­sveitar­­félög taki sér tak

Eftir áratuga barning við verðbólgu, óráðsíu og sóun í samfélaginu tókst að koma böndum á efnahagslífið. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa með vaxandi stöðugleika og bættum lífskjörum almennings.

Fastir pennar

Timburmenn kosninga

Fyrir réttum fjórum vikum lýsti ég í þessum dálki vandlætingu á þeim sem kvörtuðu og þreyttust á kosningabaráttu. Ég lýsti mikilvægi kosninga í lýðræðisþjóðfélagi og þá um leið nauðsyn á stjórnmálumræðu sem eðlilegt er að eigi sér stað rétt fyrir kosningar. Nú hvarflar að mér að fara að dæmi frambjóðandans fyrir vestan og éta þetta einfaldlega allt ofan í mig. Aðdragandi kosninganna var afspyrnu leiðinlegur.

Fastir pennar

Spennandi kosningar í Tékklandi

Núna um helgina fara fram þingkosningar í Tékklandi, þær fyrstu frá því að Tékkar gengu í Evrópusambandið 2004. Mikil spenna ríkir í tékkneskum stjórnmálum enda eru fjölbreyttir valkostir í boði.

Fastir pennar

Átti erindi til almennings

Fréttablaðið kappkostar að upplýsa lesendur sína og lætur þeim eftir að vega og meta þær upplýsingar sem koma fram í skrifum þess. Dómur Hæstaréttar er mikilvægur, en dómur lesenda er okkur enn mikilvægari.

Fastir pennar

Stefnufesta og sveigjanleiki

Það vekur athygli að einn helsti sigurvegari sveitarstjórnarkosninganna, Vinstrihreyfingin - grænt framboð, virðist ekki ætla að vinna neina sigra þegar kemur að meirihlutamyndunum. Þegar þessar línur eru skrifaðar virðist hugsanlegt að flokkurinn taki ef til vill þátt í meirihluta í einu sveitarfélagi.

Fastir pennar

Þrjátíu ára friður

Um leið og opnað verður fyrir útlendinga til þess að koma inn um bakdyrnar í fiskveiðilögsöguna falla burt öll rök um að sjávarútvegshagsmunir standi í vegi aðildar að Evrópusambandinu.

Fastir pennar

Undanhald í áföngum

Reynslan mun skera úr því, hvort nýr borgarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks mun standa við loforðin um flutning flugvallarins. Skyndilegur áhugi þeirra á málinu skömmu fyrir kosningar lofar ekki góðu um tímabærar efndir.

Fastir pennar

Nálgunarbann verður að virka

Það er mikilvægt að löggjafar- og framkvæmdavaldið skoði sérstaklega hvernig bregðast eigi við heimilisofbeldi. Það er hins vegar vandmeðfarið. Gæta verður að friðhelgi heimilisins en um leið eiga þess kost að grípa inn í aðstæður þar sem ofbeldi á sér stað.

Fastir pennar

Er Framsókn til?

Hafi einhver haldið að afhroð Framsóknarflokksins í þessum kosningum yrði til þess að hann hyrfi frá stóriðjustefnunni og greindi sig frá samstarfsflokknum er ljóst að svo er ekki. Þvert á móti borar hann sig ennfrekar inn í hálsakot íhaldsins og verður ekki héðanaf frá þessum hýsli sínum skilinn, nema með meiriháttar skurðaðgerðum, á borð við þær, sem beitt er við aðskilnað samvaxinna tvíbura.

Fastir pennar

Hæverskur góður karl og ný viðspyrna

Í Reykjavík mörkuðu nýafstaðnar kosningar þau þáttaskil að í fyrsta sinn í þrjá aldarfjórðunga voru kjósendur í óvissu að þessu leyti. Niðurstaðan var sú að í fysta sinn kom til þess að mynda þurfti meirihluta eftir kosningar, sem kjósendur höfðu ekki tekið ákvörðun um með skýrum hætti.

Fastir pennar

Friðsamlegt er yfir nýjum meirihluta í Reykjavík: Skásti kosturinn

Fyrir íbúa Reykjavíkur er meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í borgarstjórn langskásti kosturinn í stöðunni og því fagnaðarefni út af fyrir sig. Það var mikið ofmat hjá Samfylkingunni í Reykjavík að meta stöðu sína svo sterka að útiloka fyrir kosningar, eitt framboða, samstarf við Sjálfstæðisflokk um stjórn höfuðborgarinnar.

Fastir pennar

Þverstæð úrslit

Í heild voru þetta sveitarstjórnarkosningar án skarpra veðraskila. En bæði Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin þurfa að losa um þrengingar á taflborði stjórnmálanna fyrir komandi þingkosningar en að sönnu mismiklar.

Fastir pennar

Þrjú töp á tíu dögum

Ingibjörg Pálmadóttir skrifar

Stjórnmál snúast um þolinmæði, klókindi og traust. Nú reynir á að menn standi saman og tapi sér ekki þrátt fyrir tap. Þannig er það bæði í boltanum og í baráttunni um að þjóna kjósendum. Allir þurfa að axla sameiginlega ábyrgð, það dugar skammt að benda eingöngu á þjálfarann eða einstaka leikmenn. Sameiginlegt átak þarf til að ná árangri. Þessi vísindi eru ekki flóknari en svo.

Fastir pennar

Sigurgleði og brostnar vonir

Framkvæmdagleði sitjandi sveitarstjórna á síðustu tveimur árum setur oft strik í reikninginn hjá nýkjörnum fulltrúum og þrátt fyrir gefin loforð fyrir kosningar tekst ekki alltaf að láta draumana rætast eftir kosningar, þótt menn séu komnir með völdin. Ekki er því allt sem sýnist þrátt fyrir unninn sigur í kosningunum í gær.

Fastir pennar

Vangaveltur á Spáni og í norðanverðri Afríku

Stjórnmálamennirnir vita og við vitum það vel sjálf að er ekkert ókeypis, en það hljómar bara svo vel. Það þarf að borga fyrir þessa ókeypis hluti eins og aðra og líkt og hendi sé veifað hættum við að vera háttvirtir kjósendur og verðum venjulegir skattgreiðendur.

Fastir pennar

Við kjósum í dag

Ég man eftir því í árdaga, þegar ég vann á kosningaskrifstofu fyrir minn gamla flokk, að aðalvinnan var fólgin í því að merkja kjósendur í næsta húsi, í hverfinu, á vinnustaðnum og sjá svo um að koma þessu réttrúnaðarfólki á kjörstað. Og þá var nóg að vita hvar fjölskyldufaðirinn stóð í pólitikinni. Það var jafnan gengið út frá því að eiginkonan, börnin, já fjölskyldan öll stæði og sæti eins og húsbóndinn gerði og segði til um og sjálfsagt var það rétt mat.

Fastir pennar

Á liggjandanum

Í Reykjavík hafa aðstæður jafnan verið með þeim hætti að kjósendur hafa átt skýrt val um meirihluta. Það er hins vegar meir á reiki nú en áður. Forystumenn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í Reykjavík hafa hins vegar bætt nokkuð úr skák með afdráttarlausum yfirlýsingum sem í raun réttri þýða að þeir hafa útilokað samstarf þessara flokka.

Fastir pennar

Kortéri fyrir kosningar

Hér er spurt hvort ekki sé næsta öruggt að Vilhjálmur Þ. verði næsti borgarstjóri í Reykjavík jafnvel þótt hann nái ekki hreinum meirihluta, fjallað um taugaveiklun í Framsóknarflokknum, deilur um hver sé mesti umhverfissinninn og orðræðu náttúruverndarsinna sem virkar dálítið skrítin í ljósi sögunnar...

Fastir pennar

Þriðja leiðin

Ef Sjálfstæðisflokkur og Samfylking ná saman eftir kosningar er kominn geysiöflugur meirihluti sem virkilega getur látið hendur standa fram úr ermum með umboð yfirgnæfandi meirihluta borgarbúa að baki.

Fastir pennar

Draumurinn getur ræst

Ætti draumur okkar ekki að vera, að Ísland yrði frjálsasta land í heimi? Samkvæmt vísitölunni fær Ísland 7,7 stig af 10 mögulegum, en frjálsasta atvinnulíf heims er í Hong Kong, sem fær 8,7 stig. Þrennt dregur einkum úr hlut Íslendinga. Hagkerfið er ekki nógu opið, því að innflutningur landbúnaðarvöru er takmarkaður, opinberi geirinn er of stór og skattar of háir. Þessi mál eru öll leysanleg. Draumurinn um frjálsasta land í heimi getur ræst.

Fastir pennar

Da Vinci Code, skólagjöld, bílastæði

Hér er fjallað um hina frekar langdregnu kvikmynd sem gerð er eftir sögu Dans Brown, Da Vinci Code, furðulegan tregðu við að taka upp skólagjöld á háskólastigi og skrumkennda umræðu um bílastæði...

Fastir pennar

Amnesty-skýrsla kemur víða við

Árlegar skýrslur Amnesty-samtakanna um stöðu mannréttindamála í heiminum hverju sinni vekja jafnan athygli þegar þær koma út. Þar er farið yfir sviðið frá landi til lands og oft eru það sömu hlutirnir sem samtökin gera athugasemdir við ár eftir ár, og virðist ekkert duga til að kippa málum í lag á ákveðnum sviðum í einstökum löndum.

Fastir pennar

Þögn um aukinn ójöfnuð

Enn einu sinni þurfa kjósendur að ganga að kjörborði án þess að eiga aðgang að viðhlítandi opinberum tölum um tekjuskiptingu og eignaskiptingu á Íslandi. Þetta er bagalegt. Menn skipa sér jafnan í stjórnmálaflokka eða veita þeim brautargengi í kosningum til alþingis og sveitarstjórna á tveim meginforsendum.

Fastir pennar

Bankarnir elska þig ekki

Hér er fjallað um okurlánastarfsemi bankana sem elska kannski fótbolta en ekki viðskiptavini sína, um framferði lyfjafyrirtækjanna sem gerir það að völdum að réttast væri að endurreisa Lyfjaverslun ríkisins, um útnefningaspillingu og kuldakastið sem hrellir bæði fólk og fiðurfénað...

Fastir pennar

Að endurtaka leikinn

Menn í íslensku atvinnulífi hafa með sérlega eftirtektarverðum hætti sýnt þjóðinni framá að auðsköpun í samtíðinni felst alls ekki í því að gernýta landkosti eins og gerðist á 19. öld. Þetta var fólki víðast á Vesturlöndum ljóst fyrir nokkuð löngu enda eiga flestar ríkustu þjóðir heimsins utan Norður-Ameríku það sameiginlegt að eiga lítið af auðlindum en mikið af þekkingu.

Fastir pennar